Fótbolti

Aftur hefur Aron Sig betur í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni

Atli Arason skrifar
Aron Sig og félagar byrja vel í dönsku úrvalsdeildinni
Aron Sig og félagar byrja vel í dönsku úrvalsdeildinni Claus Fisker/Ritzau Scanpix

Aron Sigurðarson og liðsfélagar hans hjá Horsens unnu anna leikinn sinn í röð í dönsku úrvalsdeildinni, í þetta sinn 1-0 sigur gegn Sævari Atla Magnússyni og Lyngby undir stjórn Freys Alexanderssonar.

Nýliðarnir í Horsens gerðu sér lítið fyrir og unnu 1-0 sigur á meisturum FCK í fyrstu umferð og gerðu slíkt hið sama gegn Lyngby í kvöld en Anders Jacobsen skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu.

Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Horsens og lék í 71 mínútu áður en honum var skipt af velli. Sævar Atli Magnússon byrjaði á varamannabekk Lyngby en fékk að leika síðustu rúmu tíu mínúturnar eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 81. mínútu.

Eftir sigurinn er Horsens ásamt Nordsjælland á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar með sex stig eftir tvo leiki. Lyngby er hins vegar með eitt stig í 9. sæti eftir jafn marga leiki, einu stigi frá botnsætinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×