Dómnefndin fékk yfir hundrað bækur til skoðunar áður en þessar urðu fyrir valinu. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum bóka fyrir börn og ungmenni: Flokki bóka frumsaminna á íslensku, flokki myndlýsinga og flokki þýðinga.Verðlaunaféð er 350.000 kr. í hverjum flokki.

Borgarstjórinn veitti verðlaunin
Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn og Chadman Naimi, tólf ára nemandi við Tónskóla Sigursveins, flutti einleiksverk á píanó. Þetta eru elstu barnabókverðlaun landsins og voru fyrst veitt árið 1973 og sameinuðust Dimmalimm verðlaununum árið 2016.
Dómnefndin
Dómnefnd verðlaunanna skipuðu þau Tinna Ásgeirsdóttir, sem var formaður, Ásmundur Kristberg Örnólfsson, Guðrún Lára Pétursdóttir, Karl Jóhann Jónsson og Valgerður Sigurðardóttir. Dómnefndin hafði ýmis falleg orð um sigurverkin að segja og má sjá brot af því hér að neðan:
Um Reykjavík barnanna:
„Linda hefur unnið fagurlega úr efnivið sínum, mjólkurflöskur úr gleri í nestistíma, kennari að skenkja börnum lýsi úr lýsiskönnu og panell á veggjum skólastofu fanga vel tíðarandann og segja merkilega sögu samhliða þeirri sem kemur fram í textanum.“

Um Eldhugar: Konurnar sem gerðu aðeins það sem þær vildu:
„Þýðing Sverris Norland er vandlega unnin. Tónninn er bæði hlýlegur og lestrarhvetjandi og fallegur, handskrifaður textinn eykur þau áhrif. Stíllinn er hnitmiðaður, málfarið fágað og gagnsætt og þýðingin fellur í alla staði vel að myndasöguforminu.“
Um Ótemjur:
„Þrátt fyrir alvarlegt umfjöllunarefni er frásögnin bæði hröð og leikandi og Kristín Helga tekst í bók sinni á við efnið af næmni og frásagnargleði. Myndin sem teiknuð er upp er langt frá því að vera svarthvít, persónurnar eru hvorki algóðar né alvondar – ekki einu sinni þær sem ítrekað bregðast skyldum sínum. Um leið er afstaða höfundar skýr: Öll börn eiga að njóta bæði verndar og frelsis.“

Tilnefndar bækur
Eftirtaldar bækur voru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2022 auk þeirra bóka sem hlutu verðlaunin:
Myndlýsingar
Áslaug Jónsdóttir: Skrímslaleikur. Mál og menning gefur út.
Elísabet Rún: Sólkerfið. JPV gefur út.
Hallveig Kristín Eiríksdóttir: Fuglabjargið. Bókabeitan gefur út.
Rán Flygenring: Koma jól? Angústúra gefur út.
Þýddar bækur
Guðni Kolbeinsson: Kynjadýr í Buckinghamhöll eftir David Walliams. BF gefur út.
Jón St. Kristjánsson: Seiðmenn hins forna eftir Cressidu Cowell. Angústúra gefur út.
Sólveig Sif Hreiðarsdóttir: Á hjara veraldar eftir Geraldine McCaughrean. Kver gefur út.
Sverrir Norland: Kva se þak? eftir Carson Ellis. AM forlag gefur út.
Bækur frumsamdar á íslensku
Arndís Þórarinsdóttir: Bál tímans. Mál og menning gefur út.
Hilmar Örn Óskarsson: Holupotvoríur alls staðar. Bókabeitan gefur út.
Margrét Tryggvadóttir: Sterk. Mál og menning gefur út.
Þórunn Rakel Gylfadóttir: Akam, ég og Annika. Angústúra gefur út.