Viðskipti innlent

Verð hluta­bréfa í Ís­lands­banka lágt þegar um­deild salan fór fram

Jakob Bjarnar skrifar
Björn Leví er einn fjölmargra sem gagnrýnt hefur útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, bæði fyrra útboðið sem og hið seinna. Víst er að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á í vök að verjast í málinu.
Björn Leví er einn fjölmargra sem gagnrýnt hefur útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, bæði fyrra útboðið sem og hið seinna. Víst er að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á í vök að verjast í málinu. vísir/vilhelm

Björn Leví Gunnarsson alþingismaður segir að þegar hlutur ríkisins í Íslandsbanka var seldur hafi verð á hlutabréfum verið lágt. Hann telur ekki úr vegi að um markaðsmisnotkun ofan á annað hafi verið í kortunum.

Margþætt og hörð gagnrýni hefur verið höfð um útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrir tæpum þremur vikum. Um er að ræða 22,5 prósenta hlutur ríksins en selt var hluta­fé fyr­ir 450 milljarða króna að nafn­v­irði á geng­inu 119. Eins og fram hefur komið áttu nokkrir þeirra fjárfesta sem fengu að kaupa þegar selt hlut sinn aftur og tekið til sín góðan hagnað með þeim hætti.

 Í fyrstu var talað um að tímasetning sölunnar hafi komið fólki í opna skjöldu en þeirri gagnrýni var svarað af þeim sem henni stýrðu sem svo að það væri einmitt nauðsynlegt til að forðast markaðsmisnotkun; að verð hlutabréfa væri með eðlilegum hætti þegar til sölu kæmi.

Einn þeirra sem hefur farið hörðum orðum um söluna og að þjóðin hafi alls ekki fengið það sem henni bar við hana er alþingismaðurinn Björn Leví. 

Hann bendir á að lægsta verð hlutabréfa í Íslandsbanka að undanförnu hafi einmitt verið dagurinn sem Íslandsbanki var seldur með afslætti. Þá hafi verðið verið 4,75 prósentum lægra en tæpri viku áður. Þannig er það ekki eitt heldur allt sem er aðfinnsluvert við söluferlið.

Björn Leví birtir mynd á Facebooksíðu sinni sem sýnir þróun verðs á hlutabréfunum dagana í kringum söluna.

„Eitt af því sem umsagnaraðilar vöruðu við ef það væri farið í tilboðsleið, að það yrði að passa að það yrði engin markaðsmisnotkun á söluverði þess dags þegar salan færi fram. Í dag hljóma orðin sem Bankasýslan sagði við okkur eftir seinni söluna, að þeir væru rosalega ánægðir með að ekkert spurðist út um söluna fyrir lokun markaða,“ segir Björn og furðar sig á þessu. 

Honum telur einsýnt að allir þeir sem fylgjast með markaði vissu vel hvað stóð til, hann hafi heyrt orðróm þess efnis:

„Þessi sveifla rennir svo sannarlega stoðum undir þann orðróm.“


Tengdar fréttir

Óæskilegt ef minni fjár­festar seldu beint eftir út­boð

Lífeyrissjóðir fengu úthlutað um 40 prósent af því sem þeir voru tilbúnir að kaupa í Íslandsbanka í síðasta útboði á hlut ríkisins. Framkvæmdastjóri Brúar lífeyrissjóðs segist hafa viljað fá stærri úthlutun, fjárfesting eins og þessi sé alltaf til langs tíma. Óheppilegt sé ef minni fjárfestar hafi selt skömmu eftir útboð.

Við­skipta­ráð­herra segist hafa gagn­rýnt á­form í nefnd með for­sætis- og fjár­mála­ráð­herrum

Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×