Hetjuleg barátta Íslendingaliðs Bayern dugði ekki til

Atli Arason skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir er í lykilhlutverki hjá Þýskalandsmeisturum Bayern München.
Glódís Perla Viggósdóttir er í lykilhlutverki hjá Þýskalandsmeisturum Bayern München. getty/Roland Krivec

Paris Saint-Germain vann Bayern München á heimavelli í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld eftir framlengdan leik, PSG vann samanlagt 4-3.

Sandy Baltimore kom heimakonum yfir með marki á 17. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Saki Kumagai metin fyrir Bayern. Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Bayern aftur og var það Lea Schuller sem kom boltanum í netið. Bayern var því 1-2 yfir þegar venjulegum leiktíma lauk og því þurfti að framlengja eftir 1-2 sigur PSG í Þýskalandi.

Á 112. mínútu leiksins skoraði Ramona Bachmann sigurmarkið og PSG fer því áfram í undanúrslit.

Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allar 120 mínúturnar í liði Bayern í kvöld. Cecilía Rán Rúnarsdóttir sat allan tíman á varamannabekk Bayern en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ekki í leikmannahóp þýska liðsins vegna veikinda.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira