Innlent

Frétta­maður spreytti sig á prófinu sem krakkar vilja losna við

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Sannarlega skiptar skoðanir um píptestin.
Sannarlega skiptar skoðanir um píptestin. vísir

Krökkum í Haga­skóla finnst hund­leiðin­legt í píptesti og vilja leggja prófið niður. Í­þrótta­fræðingur sem flutti þekkingu um prófið til landsins segir prófið góða og gilda leið til að meta þol barna. Hún spyr hvort leggja ætti stærð­fræði­próf niður því mörgum líði illa í þeim.

Píptest er að­ferð við að prófa þol sem var tekin upp í grunn­skólum landsins fyrir um fjórum ára­tugum síðan.

Við litum við í Hagaskóla fyrir Kvöldfréttir Stöðvar 2 í gær, spjölluðum um píptest við krakkana og tókum sjálf prófið til að sjá hvernig það færi í okkur.

Klippa: Skiptar skoðanir um umdeilt þolpróf

Það var Þór­dís Lilja Gísla­dóttir, dósent í í­þrótta- og heilsu­fræði við Há­skóla Ís­lands, sem kynnti prófið hér á landi á níunda ára­tugnum eftir að hafa kynnst því úti.

„Við æfum þol í gegn um leiki og í­þróttir en svo prófum við það með píptesti sem er tekið þá einu sinni eða tvisvar á ári. Það er eins og sumir haldi að það sé píptest allan daginn í skóla­í­þróttum. Það er það alls ekki. Það er bara gert til þess að meta hvernig líkams­á­stand barna er,“ segir Þór­dís Lilja í sam­tali við frétta­stofu.

Þórdís kynnti píptest-aðferðina hér á landi á níunda áratugnum.vísir/einar

Eðlilegt að kvíða líkamlegu erfiði

Píptest hefur verið á milli tannanna á mörgum eftir að um­boðs­maður barna sendi bréf á mennta- og menningar­mála­ráðu­neytið í síðustu viku.

Þar lagði hann til að hætt yrði að nota prófið í grunn­skólum landsins vegna þess að um­boðs­manninum hafi borist á­bendingar um að mörg börn upp­lifðu van­líðan og kvíða fyrir prófinu og á meðan það væri í gangi.

„Samkvæmt ábendingum sem umboðsmanni hafa borist eru dæmi um að börn hafi ofreynt sig í ákafa sínum um að reyna að standa sig vel í prófinu og þá upplifa mörg börn vanlíðan og kvíða fyrir prófinu og á meðan á framkvæmd þeirra stendur“

segir meðal annars í bréfinu.

„Það er bara eðli­leg líðan. Við verðum að horfa á að það að kvíða fyrir ein­hverju sem er líkam­lega erfitt er eðli­legt og það er bara gott eins og þegar þú ert búinn að til dæmis taka píptestið þá líður þér bara vel. Þú hefur sigrast á ein­hverju og þér líður vel á eftir,“ segir Þór­dís Lilja.

„Það finnst engum þetta gaman“

Píptest er ekki haldið í öllum skólum en Haga­skóli er einn þeirra sem að heldur í hefðina. Við litum við í Haga­skóla í gær og náðum tali af krökkunum í tíunda bekk.

Finnst krökkum þetta al­mennt ekki skemmti­legt?

„Nei, það er sagt: Það er píptest og allir bara oh nei,“ segir Hlynur Freys­son.

Mynduð þið vilja banna það?

„Já, sleppa því svona helst,“ segir vinur hans Skarp­héðinn Frið­riks­son og Hlynur tekur undir.

Skarphéðinn og Hlynur segjast miklir íþróttaiðkendur en eru ekki mjög hrifnir af prófinu.vísir/einar

Tveir aðrir tíundubekkingar sem við rekumst á eru sam­mála:

„Það finnst engum þetta gaman,“ segir Róbert Frí­mann Stefáns­son Spanó.

„Þetta er svoldið mikill svona „mood killer“ að vita að það séu í­þróttir og síðan bara að frétta að það sé píptest. Það er ekki mjög skemmti­legt,“ segir vinnur hans Tristan Alex Tryggva­son.

„Það reyna allir að fá leyfi og svona. Það nennir enginn að fara í þetta,“ í­trekar Róbert.

Róbert og Tristan eru mjög góðir í píptesti en finnst það þó hundleiðinlegt. Þeir þekkja dæmi þess að nemendur reyni að fá leyfi úr skóla daginn sem prófið er haldið.

Nýkomnar úr píptesti

Nei strákarnir eru ekki ýkja hrifnir af píptestinu en það er ein­mitt verið að taka píptest í skólanum þessa vikuna.

Við rákumst á nokkrar stelpur sem voru ný­komnar úr í­þrótta­tíma.

Emblu Guð­laugu Jónas­dóttur gekk á­gæt­lega í prófinu að eigin sögn. Hún hefur ekkert á móti píptesti.

„Mér finnst þetta allt í lagi. Ég hef ekkert á móti því þannig séð,“ segir hún en kveðst þó skilja þá sem vilja láta leggja það niður.

Emblu finnst ekkert mál að taka píptest og hefur ekkert á móti því.

„Mér finnst píptest ekkert skemmti­legt. Það væri alveg á­gætt að fá að sleppa við þau. Og fyrir þá sem gengur ó­geðs­lega illa í því og eru kannski ekki með nógu gott þol - þetta er kannski leiðin­legt fyrir þau. En ég veit það ekki...“ segir hún.

Vin­konunum Freyju Bóel Guð­jóns­dóttur og Álf­heiði Sigurðar­dóttur gekk á­gæt­lega í píptestinu.

„Þetta var ekkert svaka skemmti­legt,“ segir Freyja. „Frekar erfitt sko,“ segir Álf­heiður.

Vilja aðrar aðferðir

Þær eru ekki sér­stakir að­dá­endur prófsins.

Finnst ykkur ekki að þurfi að prófa þol hjá krökkum?

Álfheiður og Freyja eru mjög á móti píptestinu.vísir/einar

„Jú, það er allt í lagi en ég held að þetta sé bara ekki leiðin,“ segir Freyja.

„Það er hægt að gera eitt­hvað annað í staðinn,“ tekur Álf­heiður undir.

Samkvæmt íþróttafræðingnum er píptest þó góð og gild leið til að prófa þol. Aðferð sem notuð er af sérfræðingum um heim allan.

„Þetta er náttúrulega próf sem við erum búin að nýta hérna í 40 ár og það hefur ekkert valdið neinum skaða. Þannig ég held það sé mjög mikilvægt að gera sér grein fyrir því að það er svo margt í skólakerfinu sem veldur kvíða. Fyrir sumum er stærðfræði til dæmis rosalega kvíðvænleg,“ segir Þór­dís Lilja.


Tengdar fréttir

Í­­þrótta­­kennarar segja alveg ó­­þarft að banna píptestin

Íþróttakennari kveðst hissa á tilmælum Umboðsmanns barna sem vill banna svokölluð „píp-test“ í grunnskóla. Umboðsmaður vill helst banna prófin en íþróttakennarar segja bannið óþarft og telja áhyggjuefni að þeim sé ekki treyst fyrir íþróttakennslu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×