Íslenski boltinn

Ingvar ó­um­deildur arf­taki Hannesar Þórs sem besti mark­vörður Bestu deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ingvar Jónsson fagnar bikarmeistaratitlinum síðasta sumar. Hann var stóð ástæða þess að Víkingar unnu tvöfalt. 
Ingvar Jónsson fagnar bikarmeistaratitlinum síðasta sumar. Hann var stóð ástæða þess að Víkingar unnu tvöfalt.  Vísir/Hulda Margrét

Það virðist sem Ingvar Jónsson, markvörður Íslands- og bikarmeistara Víkings, sé óumdeilanlega besti markvörður Bestu-deildarinnar eins og staðan er í dag. Hann sest í hásætið sem Hannes Þór Halldórsson skildi eftir er hann lagði hanskana á hilluna nýverið.

Fyrir tæpu ári síðan skrifaði blaðamaður grein þar sem farið var yfir markverði efstu deildar karla í knattspyrnu hér á landi. Þar bar einn maður höfuð og herðar yfir aðra, Hannes Þór Halldórsson – þáverandi landsliðsmarkvörður Íslands.

Nú tæpum tólf mánuðum síðar er staðan önnur. Hannes Þór hefur lagt hanskana á hilluna eftir glæstan og farsælan feril og hásæti hans því laust.

Þó blaðamaður telji sig nokkuð færan í að greina hæfileika manna í að kasta og grípa þá var ákveðið að ræða við nokkra aðila sem hafa ágætis vit á bæði fótbolta sem og markvörslu.

  • Atli Viðar Björnsson: Fyrrverandi framherji og margfaldur Íslandsmeistari með FH á sínum tíma. Starfar nú meðal annars sem sérfræðingur Stöðvar 2 Sport um íslenska boltann.
  • Tómas Þór Þórðarson: Fjölmiðlamaður sem stýrir allri umræðu um enska boltann á Símanum. Var markvörður á sínum yngri árum.
  • Sonný Lára Þráinsdóttir: Fyrrverandi markvörður og margfaldur Íslandsmeistari með Breiðabliki á sínum tíma. Starfar nú meðal annars sem sérfræðingur Stöðvar 2 Sport um íslenska boltann.

Það ætti ekki að koma verulega á óvart að eftir síðasta sumar er Ingvar Jónsson almennt talinn besti markvörður Bestu deildarinnar um þessar mundir. Eftir að sitja á varamannabekk Víkings framan af sumri kom hann inn í liðið þegar leið á tímabilið og átti risastóran þátt í því að Víkingar eru í dag bæði Íslands- og bikarmeistarar.

Var búinn að taka hásætið af Hannesi Þór síðasta sumar

„Ingvar er besti markvörður Bestu deildarinnar, það held ég að sé alveg óumdeilt svona komandi inn í mótið en hlutirnir geta breyst hratt í fótboltanum,“ sagði Tómas Þór og hélt áfram.

„Ingvar var búinn að taka hásætið af Hannesi Þór undir lok síðustu leiktíðar og þar sem Hannes er nú hættur situr Ingvar þar sæll og glaður þangað til annað kemur í ljós,“ bætti Tómas Þór við.

Vert er að taka fram að Tómas Þór er gallharður Víkingur og því kemur lítið á óvart að hann sé þessarar skoðunar. Atli Viðar hefur hins vegar engin tengsl í Víkina en er sömu skoðunar.

Þórður Ingason og Ingvar Jónsson deildu markvarðarstöðunni hjá Víkingi á síðustu leiktíð. Nú virðist sem Ingvar hafi alfarið eignað sér stöðuna.VÍSIR/HULDA MARGRÉT
„Hefur síðan þá verið einn albesti knattspyrnumaðurinn á landinu, ef ekki sá besti.“

„Sá besti að mínu mati er Ingvar Jónsson. Frábær markmaður, virkilega sterkur liðsmaður og mikill sigurvegari. Mér finnst hann hafa sýnt ótrúlegan karakter og andlegan styrk síðustu tólf mánuði eða svo. Eftir að meiðast fyrir mót kemur hann loks inn í Víkingsliðið þegar tímabilið var meira en hálfnað og gerði á endanum gott lið enn betra. Hefur síðan þá verið einn albesti knattspyrnumaðurinn á landinu, ef ekki sá besti.“

„Ingvar er augljóslega sterkur leiðtogi sem hefur góð og mikil áhrif á varnarlínu sína. Ég held að hann og hans frammistaða í sumar muni hafa stór áhrif á gengi Víkings og miðað við hvað hann hefur gert síðustu mánuði þá sé ég enga ástæðu til annars fyrir Víkinga en bjartsýni um áframhaldandi velgengni.“

Sonný Lára telur ljóst að Ingvar sé líklegur til að taka hásætið hans Hannesar Þórs en hún telur þó að hann muni fá samkeppni úr Kópavogi.

„Ingvar og Anton Ari Einarsson hjá Breiðabliki eru tveir bestu markmenn Bestu-deildarinnar. Ég get hins vegar ekki valið einn! Þeir munu slást um krúnuna í sumar, ekki spurning.“

Anton Ari Einarsson, markvörður Breiðabliks.Vísir/Vilhelm

Blaðamaður verður að taka undir með sérfræðingunum en það er ljóst að sem stendur ber Ingvar höfuð og herðar yfir aðra markverði deildarinnar. Hlutirnir geta þó verið fljótir að breytast og hver veit nema baráttan um hásætið verði spennandi eftir allt saman.


Besta deildin er á Stöð 2 Sport en nýtt keppnistímabil hefst 18. apríl. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×