Erlent

Tvær konur látnar og átján ára nemandi handtekinn

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Lögregla var með talsverðan viðbúnað á svæðinu en upprunalega var talið að fjöldi nemenda hafi slasast. 
Lögregla var með talsverðan viðbúnað á svæðinu en upprunalega var talið að fjöldi nemenda hafi slasast.  EPA/Johan Nilsson

Lögreglan í Malmö segir tvær konur hafa látist í árás við framhaldsskóla fyrr í dag. Konurnar voru fluttar á sjúkrahús um klukkutíma eftir að lögregla fékk tilkynningu um málið en voru úrskurðaðar látnar í kjölfarið. Konurnar sem létust voru starfsmenn við skólann að sögn lögreglu.

Enn sem komið er hefur ekki verið gefið út hvað átti sér stað við skólann þar sem lögregla sagðist aðeins verið að rannsaka stórfellt brot tengt einhvers konar átökum. Upprunalega var talið að fjöldi nemenda hafi slasast en svo reyndist ekki vera. 

Einn var handtekinn og hefur lögregla nú gefið það út að um átján ára gamlan nemanda við skólann hafi verið að ræða en ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til. Konurnar sem létust voru á sextugsaldri. 

Aftonbladet hefur það eftir heimildum sínum að maðurinn hafi gengið inn í skólann vopnaður exi og hníf og ráðist í kjölfarið á fólk. Skólanum verður lokað á morgun vegna málsins en rektor skólans sagði að um hörmulegt atvik væri að ræða.

Mikill viðbúnaður var á svæðinu á sjötta tímanum en um 50 nemendur voru inni í skólanum þegar atvikið átti sér stað, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins, SVT. Skólinn var rýmdur í kjölfarið og verða nemendur yfirheyrðir í kvöld. Lögreglan í Malmö mun halda blaðamannafund vegna málsins í fyrramálið, klukkan hálf níu að íslenskum tíma. 

Nemendur sem SVT ræddi við sögðust ekki hafa fengið upplýsingar um hvað hafi gerst en að lögreglumenn hafi komið vopnaðir inn í skólann. Þá sagðist einn nemandi hafa séð tvo særða einstaklinga á sjúkrabörum skömmu síðar. 


Tengdar fréttir

Einn handtekinn en ekki ljóst hvað átti sér stað

Lögregla var með töluverðan viðbúnað við framhaldsskóla í Malmö í dag þar sem talið var að fjöldi nemenda hafi slasast. Að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT liggur ekki fyrir hvað átti sér stað við skólann. Aftonbladet hefur það eftir heimildum sínum að ungur maður vopnaður exi og hníf hafi verið að verki en lögregla hefur ekki gefið neitt út. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×