Sport

Mikið um dýrðir á Meistaramóti í Laugardalnum um helgina

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Guðbjörg Jóna og Tiana Ósk háðu afar harða keppni um helgina.
Guðbjörg Jóna og Tiana Ósk háðu afar harða keppni um helgina. Instagram/ÍRFrjálsar

Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram í Laugardalnum um helgina og lauk í dag.

Mikil eftirvænting var fyrir 60 metra hlaupi kvenna en þar kom Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir fyrst í mark, rétt á undan Tiönu Ósk Whitworth. Einnig var hörð keppni í 200 metra hlaupi karla þar sem Kolbeinn Höður Gunnarsson kom í mark fyrstu en Anthony Vilhjálmur Vilhjálmsson var skammt undan.

Í 200 metra hlaupi kvenna kom Tiana Ósk fyrst í mark.

Kristján Viggó Sigfinnsson bætti U20 Íslandsmet í hástökku þegar hann stökk 2,20 metra en það skilaði honum fyrsta sæti í hástökki karla á mótinu.

Kristjáni vantar nú aðeins átta sentimetra til að ná Íslandsmetinu í fullorðinsflokki sem er í eigu Einars Karls Hjartarsonar.

Öll úrslit dagsins má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×