Gaf lögreglu upp rangt nafn og reyndist próflaus Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. febrúar 2022 06:25 Lögreglan hafði í talsverðu að snúast er varðaði fíkniefni. Vísir/Vilhelm Hæst bar í störfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt að lögregla stöðvaði ökumann á öðrum tímanum sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum og að hafa gefið lögreglu rangar upplýsingar þegar hann var spurður um skilríki og nafn.
Annar var stöðvaður á fimmta tímanum í nótt grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var gerð húsleit laust fyrir klukkan sex í gærkvöldi á heimili manns í Hlíðunum og hald lagt á ætluð fíkniefni. Þá voru höfð afskipti af ungum karlmanni í Hlíðunum á tólfta tímanum í gærkvöldi vegna neyslu og vörslu fíkniefna. Lagt var hald á fíkniefnin og vettvangsskýrsla rituð. Tilkynnt var um rúðubrot í Hlíðunum rétt fyrir ellefu í gærkvöld en þar hafði maður brotið rúðu á útihurð gistiheimilis og farið inn. Sá var handtekinn og vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu. Umferðaróhapp varð í Kópavogi rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi en engin slys urðu á fólki. Ökumaður missti stjórn á bílnum sínum í hálku og ók í veg fyrir annan bíl sem valt á hliðina. Báðar bifreiðar voru óökufærar eftir slysið en þær fjarlægðar. Kona slasaðist á sjöunda tímanum þegar hún féll af hesti í Mosfellsbæ og öklabrotnaði líklega. Þá var tilkynnt um innbrot í geymslur í Mosfellsbæ á áttunda tímanum. Talið er að engu hafi verið stolið en eignarspjöll urðu þó. Þá var tilkynnt um innbrot í aðstöðu Kayakfélaganna í Grafarvogi þar sem skemmdir urðu á hurð og verðmætum stolið. Ungur karlmaður var handtekinn laust fyrir klukkan tólf í Árbæ en sá var í annarlegu ástandi við handtökuna. Hann er grunaður um hótanir og fleiri brot og var vistaður í fangageymslu lögreglu í nótt.
Lögreglumál Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira