Innlent

Kjör­kassi í Hvera­gerði ræður úr­slitum um hve­nær niður­staða verður kynnt

Atli Ísleifsson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, Ólöf Helga Adolfsdóttir og Guðmundur J. Baldursson eru formannsefni listanna þriggja.
Sólveig Anna Jónsdóttir, Ólöf Helga Adolfsdóttir og Guðmundur J. Baldursson eru formannsefni listanna þriggja. Vísir/Vilhelm

Stjórnarkosning í Eflingu lýkur klukkan 20 í kvöld og segist Halldór Oddsson, lögfræðingur hjá ASÍ og formaður kjörstjórnar, vona að hægt verði að kynna niðurstöðu um klukkan 21:30.

Kosningin er rafræn en einnig hefur verið hægt að greiða atkvæði á skrifstofum Eflingar í Guðrúnartúni í Reykjavík og Breiðamörk í Hveragerði. Keyra þarf kjörkassann frá Hveragerði eftir að kosningu lýkur, en talið verður í Reykjavík.

Alls eru þrír listar í framboði; A-listi uppstillinganefndar með Ólöfu Helgu Adolfsdóttur sem formannsefni, B-listi með Sólveigu Önnu Jónsdóttur í forsvari og C-listi Guðmundar Jónatans Baldurssonar.

Halldór segir í samtali við fréttastofu að ef hann eigi að vera bjartsýnn þá verði hægt að kynna niðurstöðu stjórnarkjörsins um klukkan 21:30. „Það ræðst svolítið af kjörkassanum í Hveragerði. Ef Hellisheiði verður lokuð er ekki útilokað að þetta dragist til morguns, en við vonum að sjálfsögðu það besta.“

Halldór segir að kjörstjórn hafi tekið ákvörðun um að greina ekki frá kjörsókn á meðan kosning stendur enn yfir, heldur verði upplýsingar um hana teknar saman þegar niðurstaða kjörsins verður kynnt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×