Innlent

Segja Sól­veigu Önnu ljúga um um­fang kvartana

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Sólveig og Viðar hafa staðið í deilum við mikinn meirihluti starfsfólks skrifstofu Eflingar.
Sólveig og Viðar hafa staðið í deilum við mikinn meirihluti starfsfólks skrifstofu Eflingar. vísir

Hópur kvenna sem kvartaði undan framkomu Viðars Þorsteinssonar, þáverandi framkvæmdarstjóra Eflingar, sakar Sólveigu Önnu Jónsdóttur um að hafa ekki brugðist við þeim kvörtunum. Þær segja Sólveigu Önnu ljúga þegar hún segist aðeins hafa „eftir krókaleiðum“ fengið umkvartanir í eitt skipti. 

Konurnar segjast oft hafa leitað til yfirmanna sinna sem hafi komið ábendingum áfram til Sólveigar Önnu. Ein þeirra segist hafa rætt beint við hana. 

Sólveig Anna segir þetta af og frá og stendur við fyrri yfirlýsingar sínar.

Kvartanir eftir „krókaleiðum“ bárust frá mannauðsstjóra

Mann­auðs­stjóri Eflingar leitaði til Sól­veigar, þá­verandi formanns fé­lagsins, í mars á síðasta ári með nafn­lausar kvartanir sex kvenna af vinnu­staðnum um fram­komu og hegðun Viðars.

Konurnar sex segjast hafa komið munn­legum kvörtunum til Sól­veigar fyrr, ein með einka­sam­tali við hana en aðrar í gegn um yfir­menn sína. Sól­veig hefur lýst því yfir að að­eins einu sinni hafi verið kvartað við hana vegna Viðars, þá eftir „króka­leiðum“ með nafn­lausum kvörtunum. Vísar Sólveig þar til kvartana kvennanna sex, sem mannauðsstjórinn kom til hennar.

Vísir hefur þessar kvartanir undir höndum og hefur rætt við konurnar sex. Að­eins tvær þeirra starfa enn á skrif­stofu Eflingar en hinar fjórar voru ýmist reknar af Sól­veigu og Viðari eftir kvartanir sínar eða hættu sjálfar á vinnu­staðnum. Þær voru allar ráðnar inn á skrif­stofuna eftir að Viðar og Sól­veig tóku við for­ystu í fé­laginu árið 2018.

Þvertekur fyrir að leitað hafi verið til sín fyrr

Efni kvartananna rímar við niður­stöður vinnu­staða­greiningar, sem gerð var á vinnu­staðnum af sál­fræði- og ráð­gjafa­stofunni Líf og sál, sem var kynnt starfsmönnum Eflingar síðasta fimmtu­dag. Þar voru meðal annars stjórnar­hættir Viðars og Sól­veigar gagn­rýndir og niður­staðan sú að stór meiri­hluti starfs­fólks Eflingar hafi upp­lifað fram­komu Viðars sem ein­elti og fundist hann koma sér­stak­lega illa fram við konur á vinnu­staðnum.

Konurnar sex sem höfðu kvartað form­lega yfir honum í gegn um mann­auðs­stjórann í byrjun síðasta árs tóku þó fæstar þátt í um­ræddri vinnu­staða­greiningu, því sem fyrr segir starfa þær þar fæstar lengur.

Í kjöl­far þess að greint var frá vinnu­staða­greiningunni sendi Sól­veig frá sér pistil á Face­book þar sem hún segir það al­ger­lega rangt sem þar kemur fram um að starfs­fólk hafi marg­oft leitað til sín vegna illrar með­ferðar Viðars:

„Stað­reyndin er sú að þetta er ein­fald­lega ó­satt. Í eitt skipti var komið til mín eftir króka­leiðum. Mér var sýnt saman­safn að ó­dag­settum og nafn­lausum upp­lifunum ein­hverra sem störfuðu á skrif­stofunni,“ skrifaði hún og vísar þar til þess þegar mann­auðs­stjórinn leitaði til hennar með kvartanir kvennanna sex.

Konurnar segja Sól­veigu hins vegar ljúga þarna; ein þeirra hafi átt per­sónu­legt sam­tal við Sól­veigu um vanda­mál sín í sam­skiptum við Viðar og að í nokkur skipti hafi starfs­fólk á skrif­stofunni fengið yfir­menn sína til að ræða fram­göngu Viðars við Sól­veigu.

Þegar frétta­stofa náði tali af Sól­veigu í dag segist hún standa við orð sín í pistlinum á Face­book og harð­neitar fullyrðingum kvennanna. Aldrei hafi verið leitað til hennar áður en nafn­lausu kvartanirnar bárust í gegn um mann­auðs­stjórann.

Hún vildi ekki svara neinum frekari spurningum um málið og sagðist ein­fald­lega „blöskra þessar gegndar­lausu á­rásir sem á mér dynja“.

Sólveig Anna verður gestur Pallborðsins á Vísi klukkan 14 í dag þar sem frambjóðendur til formanns takast á. Bein útsending verður hér.

Undanfari uppþotsins í haust

Eftir að mannauðsstjórinn sýndi Sólveigu kvartanirnar segja konurnar að ekkert hafi verið gert til að reyna að leysa málin. Sól­veig hafi ekki brugðist við þeim með neinum hætti og þær hafi aldrei heyrt meira af málinu. Í kjöl­farið hafi verið leitað til trúnaðar­manna starfs­manna skrif­stofunnar og þeim gert grein fyrir van­líðan starfs­fólksins. 

Trúnaðar­mennirnir tóku síðan stöðuna á ýmsum starfs­mönnum og skrifuðu eftir það á­lyktun, sem send var á yfir­menn Eflingar í byrjun sumars 2021. Það var sú á­lyktun sem Guð­mundur Jónatan Baldurs­son, stjórnar­maður Eflingar, fékk veður af og vildi að stjórnin fengi af­henta. 

Í kjöl­farið hófust miklar deilur innan fé­lagsins þar sem Viðar og Sól­veig gagn­rýndu til að mynda trúnaðar­mennina harð­lega fyrir að hafa komið skila­boðum starfs­mannanna á fram­færi og að lokum sagði Sól­veig af sér sem for­maður fé­lagsins og Viðar sagði upp sem fram­kvæmda­stjóri.

Í pistlinum sem Sól­veig birti á Face­book á fimmtu­dag gagn­rýndi hún það að kvartanirnar sem mann­auðs­stjórinn kom með til hennar hafi verið nafn­lausar og að hún hafi ekki fengið að halda þeim eftir að hún las þær yfir. 

Konurnar segja í sam­tali við frétta­stofu að það hafi verið þeirra ósk að Sól­veig fengi ekki að halda kvörtununum eftir af ótta við að hún myndi sýna Viðari þær og hann geta greint þannig hverjar hefðu skrifað þær. Þær töldu að um leið og Viðar vissi að þær hefðu kvartað undan sér myndi hann reyna að bola þeim úr starfi. Þremur þeirra var sagt upp síðar um árið.

„Ég skrifa þetta nafn­laust vegna þess að ég óttast um starf mitt, raunar óttast allar konurnar á mínu sviði um störf sín og upp­lifa að það megi ekki koma með á­bendingar eða kvarta yfir neinu sem við kemur verk­ferlum eða sam­skiptum á vinnu­staðnum, sér­stak­lega ef það við kemur fram­kvæmda­stjóra. Hann tekur gagn­rýni ekki vel og það kemur í bakið á manni að opna munninn,“ skrifar ein til dæmis í upp­hafi kvörtunar sinnar.

Saka Viðar um kvenfyrirlitningu

Kvartanirnar ríma í öllum megin­at­riðum við það sem fram hefur komið eftir vinnu­staða­greininguna um starfs­hætti Viðars. Konurnar kvarta þar undan fram­komu yfir­manns síns gegn sér. Hann tali við þær af lítils­virðingu, geri lítið úr sér­fræði­þekkingu þeirra, sé ein­stak­lega lé­legur í að leysa vanda­mál sem upp koma á vinnu­staðnum, bak­tali starfs­fólk við annað starfs­fólk.

Þar kvarta tvær kvennanna einnig yfir því að Viðar komi mun verr fram við konur en karla á skrif­stofunni:

„Ég upp­lifi að Viðar van­treysti konum á vinnu­staðnum, jafn­vel þeim sem hafa mikla reynslu af stjórnunar­störfum og að hann efist al­mennt um heilindi þeirra. Ég sé mikinn mun á fram­komu hans við karlana og fram­komu hans við konurnar, hann efast ekki um getu karlanna til að ráða fram úr verk­efnum sínum en hann reynir að stjórna konunum niður í minnstu smá­at­riði og sér til þess að þær séu alltaf á nálum og finni fyrir pressu og van­trausti.“

Baktali samstarfsmenn sína

Í tveimur kvörtunum er Viðar sagður bak­tala starfs­menn sína við aðra á skrif­stofunni: „Ég hef heyrt Viðar tala illa um annað starfs­fólk sem lét mér líða illa og gróf undan trausti mínu til hans sem fram­kvæmda­stjóra og fag­manns,“ segir í einni kvörtuninni og í annarri: „T.a.m. notar hann orðið „vit­leysingur“ um fólk í á­heyrn annarra. Hann tjáði mér að auki varðandi kollega hjá Eflingu, þegar ég gerði at­huga­semd um að við­komandi hefði ekki verið boðuð á fund þar sem hennar við­fangs­efni var til um­fjöllunar, að „hún væri bara alls ekki að sinna starfi sínu“ eða „væri ekki að valda starfi sínu“ og hann væri í raun að fara að leggja niður starfið hennar.“

Konurnar segja að Sól­veig hafi al­mennt ekki verið í miklum sam­skiptum við starfs­fólk skrif­stofunnar en þegar þær hafi verið ráðnar inn á vinnu­staðinn hafi þær haft mikla trú á hennar sýn á verka­lýðs­bar­áttuna. Þeim hafi þó sárnað mjög þegar hún brást ekki við kvörtunum þeirra um Viðar og al­mennt hefur öllu starfs­liði skrif­stofunnar sárnað orð­ræða bæði Viðars og Sól­veigar um sig á sam­fé­lags­miðlum, bæði í haust rétt eftir að þau hættu hjá fé­laginu og nú ný­lega.

Eins og ein skrifar í kvörtun sinni um Viðar: „Ef ekkert er að gert þá mun þetta enda illa, og það væri mikil synd. Ég hef trú á Sól­veigu Önnu og bar­áttunni fyrir bættum kjörum fé­lags­manna Eflingar, ég vil ekki sjá þá mikil­vægu vinnu fara for­görðum.“

Og veltir einnig upp spurningunni um hvort eðli­legt hvernig stéttar­fé­lag taki svo illa á eigin starfs­manna­málum: „Við erum stéttar­fé­lag og ættum að vera fyrir­mynd þegar kemur að starfs­manna­haldi. Hvernig eigum við að hjálpa fé­lags­mönnum eins og best verður á kosið ef sam­skipti og verk­ferlar á okkar eigin vinnu­stað eru í ó­lestri?“

Agnieszka gagnrýnir Sólveigu

Núverandi formaður Eflingar, Agnieszka Ewa Ziółkowska, birti pistil hér á Vísi í dag þar sem hún gagnrýnir starfshætti Sólveigar en sjálf var Agnieszka varaformaður hennar. Agnieszka hefur lýst yfir stuðningi við framboð Ólafar Helgu Adolfsdóttur og situr í öðru sæti á lista hennar í formannskosningum félagsins sem hefjast á morgun og standa til 15. febrúar. 

„Á þremur árum hafa stjórnarhættir Sólveigar og Viðars Þorsteinssonar kostað Eflingu gífurlegar fjárhæðir og mikinn mannauð. Baráttuhugurinn er til staðar í hreyfingunni, en Sólveig er sjálf orðin málsvari sundrungar,“ skrifar Agnieszka meðal annars.

Hún segist hafa stutt Sólveigu Önnu heilshugar í baráttu hennar í upphafi. 

„Sólveig Anna er hins vegar ekki rétta manneskjan til að leiða baráttuna áfram og hefur sýnt það með óbilgirni og vangetu til að hlusta á raddir annarra en sína eigin. Þrátt fyrir að baráttuorð hennar tali um mikilvægi samstöðu þá sýna gjörðir hennar að sú samstaða sem hún kallar eftir er í raun aðeins blind hollusta og jafnvel það dugar varla til því hún hefur einangrað sig frá flestum þáttum starfseminnar og blandar nær aldrei geði við fólkið á gólfinu sem er helst í sambandi við félagsfólk og þekkir helst þann vanda sem verkalýðsfélögin glíma við. Ef stjórnandi á öðrum vinnustað en Eflingu myndi hegða sér með þessum hætti yrði það litið alvarlegum augum,“ skrifar Agnieszka.


Tengdar fréttir

„Mátti segja hvað sem er um mig“

Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, segir fáar manneskjur hafa þurft að þola jafn ósvífnar atlögur að persónu sinni og hún. Hún hafi ekki átt neina aðra úrkosti nema að segja af sér eftir að trúverðugleiki hennar skaðaðist.

„Þessi staða er algjörlega hennar“

„Ég er mjög ósáttur vegna þess að hún er í fyrsta lagi að kenna mér um þetta og svo ræðst hún með ótrúlegri ósvífni á starfsfólk skrifstofu Eflingar og trúnaðarmenn,“ segir Guðmundur Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu, um ummæli Sólveigar Önnu Jónsdóttur um að starfsfólk hafi hrakið hana úr embætti formanns.

Sakar Sól­veigu Önnu og fé­laga um út­­lendinga­and­úð

Maxim Baru, fyrrverandi sviðsstjóri félagssviðs Eflingar ber Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Viðar Þorsteinsson þungum sökum í fréttatilkynningu sem hann sendi Vísi. Hann segir nornaveiðar Sólveigar Önnu innan Eflingar hafa endað með brottrekstri nánast allra erlendra starfsmanna félagsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×