Sport

Stjarna liðsins borgaði bjórinn sem áhorfandi sullaði út af honum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dylan Larkin fagnar marki með félögum sínum í Detroit Red Wings.
Dylan Larkin fagnar marki með félögum sínum í Detroit Red Wings. AP/Paul Sancya

Íshokkíleikmaðurinn Dylan Larkin fékk samviskubit eftir smá óhapp í upphitun fyrir leik í NHL-deildinni í Bandaríkjunum. Hann hefur fengið athygli fyrir hugulsemi sína gagnvart áhorfenda á leik sem hann spilaði.

Bjór á íþróttakappleikjum í Bandaríkjunum kostar sitt en áhorfendur mega taka hann með sér í sætin. Það getur kallað á slys sérstaklega þegar þú ert mættur á íshokkíleik og sætið þitt er upp við ísinn.

Upphitun hjá Detroit Red Wings liðinu endaði með því að fyrirliði liðsins, Dylan Larkis, endaði á veggnum í kringum völlinn og varð til þess að áhorfandi hinum megin við hann sullaði bjórnum sínum.

Dylan Larkin var með hljóðnema á sér og myndavélarnar voru líka á honum þegar þetta gerðist. Þegar hann áttaði sig á því hvað hefði gerst í stúkunni þá baðst hann fyrst afsökunar.

Hann lét þó ekki þar við sitja því hann fékk aðstoðarmann liðsins til að fara með pening til áhorfendanna til að borga fyrir bjórinn sem sullaðist.

„Mér líður illa út af þessu. Ertu ekki með veskið á þér og átt tuttugu dollara,“ spurði Dylan Larkin aðstoðarmanninn.

Aðstoðarmaðurinn sást síðan fara með peninginn til áhorfandans.

Þetta var leikur á móti New York Islanders en hann fór síðan á kostum í næstu tveimur leikjum á eftir, var fyrst með mark og stoðsendingu á móti Carolina Hurricanes og skoraði síðan þrennu og gaf stoðsendingu að auki í leik á móti New Jersey Devils. Það var hans fyrsta þrenna á NHL-ferlinum.

Góðvild Larkin hafði því greinilega mjög góð áhrif á hann í næstu leikjum á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×