Lífið samstarf

Vel valið rúm fyrir væran svefn

Vogue fyrir heimilið
Halldór Snæland hjá Vogue fyrir heimilið 
Halldór Snæland hjá Vogue fyrir heimilið  Vilhelm

Góður nætursvefn er gulli betri.

„Við vitum að sama dýnan passar ekki öllum. Við skiptum viðskiptavinum niður í flokka eftir aldri og hver þessara hópa útheimtir síðan sérstaka dýnutegund,“ segir Halldór Snæland hjá Vogue fyrir heimilið.

„Þarfirnar breytast, til dæmis er dýna í rimlarúmi barns einungis notuð til að sofa á en á aldrinum 8 til 12 ára er rúmið líka orðið sófi og notandinn sefur, situr og hoppar á dýnunni. Eldri aldurshópar gera síðan enn aðrar kröfur, meðal annars um breidd rúmsins og svo framvegis. Þegar tveir deila rúmi þar að sameina ólíkar kröfur og þarfir í einu rúmi. Ég ráðlegg fólki að koma til okkar án þess að hafa ákveðið fyrirfram hvað það ætlar að kaupa. Úrvalið er mjög mikið og það skiptir máli að peningarnir þínir fari í rúm sem hentar þér,“ segir Halldór.

Vilhelm

„Öll okkar rúm eru framleidd eftir pöntun fyrir hvern einstakling. Við höfum framleitt rúm og dýnur frá árinu 1949 og þjónustum heimili, hótel og sjúkrastofnanir og vitum hvað virkar. Dýnurnar er útbúnar þannig að hægt sé að skipta innihaldinu út. Til dæmis ef kaupa á dýnur í tvíbreytt rúm eru þarfir þeirra sem sofa í rúminu um stífleika dýnunnar ólíkar. Þá getur önnur burðardýnan innihaldið pokagorma og hin latexsvamp eða kaldsvamp og svo fer yfirdýna yfir allt til að loka samskeytum, eða tvær mismunandi yfirdýnur. 

Þá hefur fólk fjögurra vikna skiptirétt því það er ekki auðvelt að velja dýnuna með sölumanninn standandi yfir sér. Við ráðleggjum auðvitað og hjálpum og svo fer fólk heim og prófar. Ef fólk er ekki ánægt með dýnuna finnum við út hvað þarf að leysa og skiptum út.“

Vilhelm

Sérsniðnir höfðagaflar og áklæði í úrvali

„Við smíðum rúmbotna og höfðagafla eftir pöntun og fólk getur valið sér áklæði eftir smekk. Á saumastofunni okkar framleiðum við einnig gluggatjöld og því getur fólk til dæmis valið sama efni eða sama lit í gluggatjöldin í stofunni og rúmgaflinn í svefnherberginu og búið til falleg heildarútlit á heimilið. Rúmgaflarnir eru með hnöppum, stungnir eða sléttir og allavega. Við getu einnig útbúið höfðagafl alveg eftir séróskum.“ segir Halldór.

Vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×