Sport

Jólalegur Wright sigldi inn í 32-manna úrslit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Peter Wright mætti klæddur eins og Grinch í fyrra. Hann vann öruggan 3-0 sigur í kvöld.
Peter Wright mætti klæddur eins og Grinch í fyrra. Hann vann öruggan 3-0 sigur í kvöld. Luke Walker/Getty Images

Hinn skrautlegi Peter Wright er kominn í 32-manna úrslit heimsmeistaramótsins í pílukasti eftir öruggan 3-0 sigur gegn Englendingnum Ryan Meikle í lokaviðureign kvöldsins.

Peter Wright hikstaði aðeins í upphafi viðureignarinnar og þurfti alla fimm leggina til að klára fyrsta settið. 

Skotinn var svo heldur öruggari í öðru setti þar sem hann vann 3-1, og þriðja settið reyndist það seinasta þar sem Wright sigraði 3-0 og þar með tryggði heimsmeistarinn frá 2020 sér sæti í 32-manna úrslitum.

Fyrr í kvöld vann Englendingurinn Ross Smith öruggan 3-0 sigur gegn nafna sínum frá Kanada, Jeff Smith, og Joe Murnan sló aldursforseta mótsins, Paul Lim, úr leik með 3-2 sigri.

Þá má ekki gleyma stóru stund kvöldsins þegar William Borland sigraði Bradley Brooks 3-2, en Borland kláraði viðureignina með fyrsta níu pílna leik mótsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×