Innlent

Heim­il­is­hjálp verð­i frá­drátt­ar­bær frá skatt­i

Samúel Karl Ólason skrifar
Frádrættinum er ætlað að ná til starfa sem innt eru af hendi hér á landi á heimili einstaklinga og í sumarhúsum þeirra.
Frádrættinum er ætlað að ná til starfa sem innt eru af hendi hér á landi á heimili einstaklinga og í sumarhúsum þeirra. Getty

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja gera breytingar á lögum um tekjuskatt á þann veg að heimilishjálp verði frádráttarbær frá skatti. Hver skattgreiðandi geti dregið frá tekjuskattsstofni allt að 1,8 milljón króna á ári.

Í tilkynningu segir að frádrættinum sé ætlað að ná til starfa sem unnin eru á heimilum fólks og sumarhúsum.

„Til slíkra starfa teljast t.d. hefðbundin heimilisstörf, svo sem þrif og hreingerningar, hefðbundin garðyrkjustörf eða snjómokstur á gangstéttum og í innkeyrslu að heimili. Þegar húsfélag fjöleignarhúss annast greiðslu kostnaðar úr sameiginlegum sjóði vegna slíkra starfa á sameign getur einstaklingur dregið sinn hlut í þeim kostnaði frá tekjuskattsstofni sínum,“ segir í tilkynningunni.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Einnig eigi ákvæðið að ná til störf sem snúa að umönnun fólks vegna veikinda eða fötlunar, umönnun barna og aðstoðar við fólk í tengslum við ferðir til og frá heimili.

Vilhjálmur Árnason er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en meðflutningsmenn hans eru Óli Björn Kárason, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Öll eru þau þingmenn Sjálfstæðisflokksins.

Haft er eftir Vilhjálmi í tilkynningunni að markmið frumvarpsins sé meðal annars að sporna við svartri atvinnustarfsemi og ýta undir aukin réttindi fólks sem vinnur störf eins og þau sem nefnd eru hér að ofan.

Vilhjálmur ræddi frumvarpið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann sagði meðal annars að verið væri að horfa til eldra fólks sem vildi búa áfram á heimilum sínum og frumvarpið ætti að gera fólki það auðveldara. Sömuleiðis væri verið að líta til fjölskyldufólks og gera þeim auðveldara að fjárfesta í þjónustu sem þessari.

Hægt er að hlusta á þann hluta þáttarins sem Vilhjálmur var í hér að neðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×