Innlent

Losunar­mark­mið ríkis­stjórnarinnar nær ekki til Evrópu

Kjartan Kjartansson og Eiður Þór Árnason skrifa
Ríkisstjórnin hyggst ganga lengra en núgildandi markmið Evrópusambandsins segir til um.
Ríkisstjórnin hyggst ganga lengra en núgildandi markmið Evrópusambandsins segir til um. Vísir/Vilhelm

Hlutdeild Íslands í sameiginlegu markmiði Evrópusambandsins og Noregs um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda verður talsvert lægra en 55% þrátt fyrir að kveðið sé á um 55% losunarmarkmið í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. 

Hlutur Íslands í sameiginlega markmiðinu verður minni en hjá mörgum ríkjum þar sem meðal annars er tekið tillit til hlutfalls endurnýjanlegrar orku og kostnaðarhagkvæmni aðgerða.

Íslensk stjórnvöld eru í samfloti við Evrópusambandið og Noreg um formlegar skuldbindingar til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum gagnvart Parísarsamkomulaginu. Sameiginlegt markmið ríkjanna hefur verið 40% samdráttur miðað við losun ársins 2005 fyrir árið 2030 en hlutdeild Íslands í því er 29%. Þýðir það að lágmarksframlag Íslands er 29% samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda til 2030 í geirum sem standa utan viðskiptakerfis ESB.

ESB ákvað í fyrra að herða losunarmarkmið sitt í 55% samdrátt miðað við losun ársins 1990 fyrir árið 2030 í samræmi við kröfur Parísarsamkomulagsins. Vinna er hafin við að reikna út hver hlutdeild Íslands í þessu nýja metnaðarfyllra markmiði verður.

Mesta aukningin hefur orðið í losun frá vegasamgöngum hér á landi frá árinu 1990. Frá þeim tíma hefur losun aukist um 82%.Vísir/Vilhelm

Markmið ríkisstjórnarinnar óháð forsendum ESB

Þrátt fyrir að í stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem var kynntur í síðasta mánuði sé kveðið á um dregið verði úr losun um 55% verður hlutdeild Íslands í sameiginlega markmiði ESB og Noregs „talsvert lægra“ en það. Þetta staðfestir umhverfisráðuneytið í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis.

Ráðuneytið bendir á að ríkisstjórnin hafi sett sér sérstakt markmið um 40% samdrátt í losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda.

„Það sama á við nú. Í stjórnarsáttmála er sett fram sjálfstætt landsmarkmið um 55% samdrátt í losun á beinni ábyrgð Íslands. Þetta nýja markmið er óháð því markmiði sem verður ákvarðað [miðað við] forsendur ESB. Það markmið liggur ekki fyrir en reiknað er með að það verði talsvert lægra en 55%,“ segir í svarinu.

Auknar kvaðir fylgja sameiginlega markmiðinu þar sem stjórnvöld þurfa að svara fyrir framgang sinn gagnvart ESB og loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna.

Minni kröfur gerðar til Íslendinga

Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir hlutdeild ríkja í sameiginlegu markmiði Evrópusambandsins, Íslands og Noregs reiknaða út frá ýmsum þáttum sem lúta að hagkerfinu og losun gróðurhúsalofttegunda.

Hlutdeild Íslands sé aðeins lægri en meðaltalstalan fyrir allar þjóðir sem þýðir að sumum þeirra sé gert að draga meira úr losun en Ísland. 

„Ástæðan fyrir því að Ísland reiknast með að þurfa að gera minna er að það er orðið tiltölulega dýrara að draga úr losun hér heldur en annars staðar, við erum búin með mikið af hagkvæmustu þáttunum,“ segir Halldór við.

Þar má nefna að Ísland og Noregur eru komin lengra en önnur Evrópuríki þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegrar orku. Halldór segir mjög mikilvægt að það liggi fyrir sem allra fyrst hver hlutdeild Íslands verði.

Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.Vísir/Vilhelm

Mörg ríki vilji ganga lengra

„Það sem er að gerast með stjórnarsáttmálanum er í samræmi við þá þróun sem er að verða annars staðar. Ríkin eru til viðbótar að ganga lengra og þá er það ekki formleg skuldbinding gagnvart Parísarsamkomulaginu heldur svona innanlandsásetningur. Þá er líka hugsanlega opið að gera það upp með einhverjum öðrum hætti ef ástæða þykir til,“ segir Halldór.

Halldór segir að sátt sé um þessa leið innan ESB þar sem hlutdeild einstakra ríkja í sameiginlega markmiðinu taki mið af því hvernig aðstæður séu á hverjum stað líkt og áður segir.

Í samræmi við tilmæli Loftslagsráðs

Loftslagsráð er sjálfstætt starfandi ráð sem hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald með faglegri ráðgjöf um loftslagsmál. Samkvæmt lögunum eiga sæti í ráðinu fulltrúar atvinnulífsins, háskólasamfélagsins, sveitarfélaga og umhverfisverndarsamtaka auk annarra fulltrúa. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar formann, varaformann og fulltrúa ungs fólks.

Halldór segir að Loftslagsráð hafi hvatt stjórnvöld til að setja sér innlent markmið sem gangi lengra en núverandi skuldbindingar gagnvart Parísarsáttmálanum.

„Til þess að vera nær því að vera á réttri leið gagnvart kolefnishlutleysi 2040 þá er hreinlega skynsamlegast að ganga lengra 2030. Það er mun hagkvæmara að grípa til aðgerða ef maður hefur aðeins lengri tíma til þess.“

Með þeim hætti verði stjórnvöld í betri stöðu til að takast á við næsta áfanga losunarskuldbindinga: „Það er lang hagkvæmast að byrja strax.“

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og fulltrúi í Loftslagsráði.Vísir/Vilhelm

Skorti beinharðar tölur og gögn

Árni Finnsson, formaður  Náttúruverndarsamtaka Íslands og annar tveggja fulltrúa umhverfissamtaka í Loftslagsráði, telur sjálfstæða losunarmarkmið ríkisstjórnarinnar ákveðna sýndarmennsku þar sem engar aðgerðir fylgi því.

Hann bendir á að losun hafi aðeins dregist saman um átta prósent frá árinu 2005 og auka þurfi samdráttinn um tugi prósentustiga til að markmið ríkisstjórnarinnar náist.

„Enginn hefur spurt hvort þetta sé raunhæft. Hefur Ísland ekki misst af lestinni fyrir löngu?“ spyr Árni sem veltir jafnframt fyrir sér hvort að íslensk stjórnvöld ætli sér að uppfæra landsmarkmið sitt á fyrri hluta næsta árs til að geta kynnt það á COP27-loftslagsráðstefnunni í Egyptalandi.

Árni gagnrýnir að erfitt sé að nálgast tölur eða útreikninga um losun og markmið Íslands. Hann spyr hvort að það samræmist markmiðinu að halda áfram að flytja inn bensín- og dísilbíla til ársins 2030. Hann telur að flýta verði banni við nýjum slíkum bílum þrátt fyrir að hann skorti tölur til að meta það „aðrar en að þeim mun meira sem við flytjum inn mengandi bíla, þeim mun meira lokum við okkur inni í kolefnishagkerfinu sem ríkisstjórnin segist vilja út úr.“

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

ESB stefnir á kol­efnis­hlut­leysi með nýju lofts­lags­mark­miði

Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um að stefna að enn frekari samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á þessum áratug sem á að gera Evrópu að fyrstu kolefnishlutlausu álfunni um miðja öldina. Íslensk stjórnvöld hafa þegar sagst ætla að taka þátt í nýja markmiðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×