KR-ingar missa landsliðsmanninn sinn til Hollands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2021 10:59 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson fagnar körfu með KR í vetur. Vísir/Bára Dröfn KR-ingurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er á leiðinni í atvinnumennsku en hann hefur samið við hollenska úrvalsdeildarliðið Landstede Hammers.
KR-ingar segja frá því að þeir séu að missa landsliðsmanninn á miðju tímabili en Þórir hefur spilað mjög vel að undanförnu með KR-liðinu. KR-ingar hafa verið að glíma við meiðsli lykilmanna að undanförnu og það er ljóst að þessir missir er ekki viðbætandi. Þeir standa hins vegar ekki í vegi fyrir því að enn einn leikmaður úr unglingastarfi félagsins kemst út í atvinnumennsku. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu, þetta er frábært tækifæri í skemmtilegri deild. Á sama tíma er erfitt að skilja við KR á miðju tímabili og ég er þakklátur fyrir stuðninginn og skilninginn. Ég óska liðinu góðs gengis og fylgist spenntur með,“ sagði Þórir í viðtali við heimasíðu KR. Landstede Hammers leikur í BNXT deildinni en í henni leikur einnig Antwerp Giants sem er félag landsliðsmannsins Elvars Más Friðrikssonar. Þórir er uppalinn KR-ingur en hafði verið í bandarískum háskóla undanfarin ár. Hann varð nokkrum sinnum Íslandsmeistari með KR áður en hann fór út í skóla. Þórir er með 15,9 stig, 10,5 fráköst og 4,8 stoðsendingar að meðaltali í leik í átta leikjum með KR liðinu í Subway-deildinni í vetur. Í nóvember og desember hafði hann hækkað þessar tölur í 17,8 stig, 11,3 fráköst og 7,8 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Subway-deild karla KR Mest lesið Sjáðu mörkin úr einum ótrúlegasta hálfleik í sögu Meistaradeildarinnar Fótbolti Linsan datt út en varði samt tvö víti Enski boltinn Rosalegt prump samherja setti Hatton út af laginu Golf Ragnar við toppinn í Fantasy: „Er þetta ekki rólegasti tíminn fyrir rithöfunda?“ Enski boltinn Brot af því besta úr DocZone: „Er þetta ekki hættulegt?“ Enski boltinn Sonur Rickys Hatton tjáir sig: „Elska þig, pabbi“ Sport Leikirnir eftir tvískiptingu: Skagamenn fara á Ísafjörð, til Akureyrar og Eyja Íslenski boltinn Segja áruna yfir röflandi Blikum slæma Íslenski boltinn Rekinn eftir tapið fyrir Qarabag og Mourinho gæti tekið við Fótbolti Hákon reyndist hetja Brentford Enski boltinn Fleiri fréttir NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Caitlin Clark ekki meira með á tímabilinu Sjá meira