Skoruðu bara fjórtán stig í síðustu þremur leikhlutunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2021 16:00 Maja Michalska skoraði sex stig fyrir Skallagrím gegn Haukum. Enginn leikmaður liðsins skoraði meira. vísir/vilhelm Óhætt er að segja leikmenn Skallagríms hafi ekki fundið sóknartaktinn gegn Haukum í Subway-deild kvenna í gær. Borgnesingar skoruðu aðeins 29 stig í leiknum, þar af bara eitt í 2. leikhluta.
Skallagrímur hefur tapað öllum þremur leikjum sínum í Subway-deildinni; með fjórtán stigum gegn Keflavík, 66-80, 22 stigum gegn Val, 70-92, og svo með 64 stigum gegn Haukum í gær, 93-29. Borgnesingar voru ellefu stigum undir eftir 1. leikhluta en skoruðu samt fimmtán stig í honum. Það sem eftir lifði leiks skoraði Skallagrímur hins vegar aðeins fjórtán stig. Annar leikhlutinn var verstur en þar skoraði Skallagrímur aðeins eitt stig. Borgnesingar klikkuðu á öllum tíu skotum sínum og töpuðu boltanum níu sinnum. Nikola Nedorosíková skoraði eina stig Skallagríms í 2. leikhluta af vítalínunni. Seinni hálfleikurinn var litlu betri en þar skoraði Skallagrímur aðeins þrettán stig samanlagt. Á endanum urðu stigin aðeins 29. Mammusu Secka, Embla Kristínardóttir og Maja Michalska voru stigahæstar í liði Skallagríms með sex stig hvor. Leikmenn Skallagríms töpuðu boltanum alls 36 sinnum í leiknum og náðu bara 49 skotum á körfuna gegn 93 skotum hjá Haukum. Borgnesingar voru með 37 prósent nýtingu í tveggja stiga skotum og ellefu prósent í þriggja stiga skotum. Nedorosíková nýtti annað af aðeins tveimur vítaskotum Skallagríms í leiknum. Haukar voru með 136 framlagsstig í leiknum á meðan Skallagrímur var með mínus tvö stig í framlag. Vissulega vantaði bandarískan leikmann í lið Skallagríms en það tefldi samt fram þremur erlendum leikmönnum. Næsti leikur Skallagríms er gegn Breiðabliki í Borgarnesi á miðvikudaginn. Ljóst er að Goran Miljevic, þjálfari Skallagríms, þarf eitthvað að fara yfir sóknarleik liðsins fyrir þann leik.
Subway-deild kvenna Skallagrímur Mest lesið Sauð upp úr á blaðamannafundi Hollands á EM Fótbolti Liverpool borgar fjölskyldu Jota það sem hann átti eftir af samningnum Sport Óvissan tekur við hjá Hákoni Enski boltinn Taka ákvörðun um Glódísi á leikdag Fótbolti Heimir og Lagerbäck sameinaðir á ný Fótbolti Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Enski boltinn Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Enski boltinn Vilja allar það sem Sveindís hefur: „Margt sem ég myndi vilja taka frá þeim“ Fótbolti Tryggði sig inn á Opna breska risamótið með mögnuðum erni Golf Leik lokið: Vestri - Valur 0-2 | Valsarar halda áfram góðu gengi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Sjá meira