Félag málandi kvenna heldur sína fyrstu sýningu Árni Sæberg skrifar 16. október 2021 10:00 Hópurinn varð til í kjölfar óformlegrar könnunar sem Kristín Morthens gerði árið 2019. Snorri Bros Í dag hefst listasýning sextán kvenna í Listasal Mosfellsbæjar sem gengur undir heitinu Endurheimt(a)/Reclaim(ing). Þetta er fyrsta sýning listahópsins Félag málandi kvenna sem er óformlegt stuðningsnet við kvenkyns málara.
Hópurinn varð til í kjölfar óformlegrar könnunar sem Kristín Morthens gerði árið 2019 um hlutfall kvenna sem sýnenda í galleríum Reykjavíkur. Hún var þá tiltölulega nýkomin til Reykjavíkur frá Torontó þar sem margir stærstu málaranna eru konur. „Hlutfallið hér var alveg fáránlegt. Þegar ég leit betur yfir landslagið tók ég eftir hvað miklu munar á sölum á málverkum eftir karla og konur, það var eins og hugmyndin um karlkyns málara snillinginn sæti enn föst í hugum borgarbúa. Að „málarinn“ líti út eins og Kjarval eða einhver af okkar gömlu „meisturum“. Hæsta hlutfall listamanna í galleríi sem voru konur var 36 prósent en flest galleríin voru að slefa í 22 til 26 prósent. Ég hugsaði að þetta gæti ekki verið tilviljun að körlum finnist bara miklu skemmtilegra að mála en konum og séu betri í því. En ég þurfti ekki að leita lengri en til kynslóðar foreldra minna þar sem það tíðkaðist að segja „þú málar eins og kelling“ ef einhver þótti ekki góður málari,“ segir Kristín Morthens í fréttatilkynningu. Kristín segir margar kvenna í kringum hana hafa haft sömu tilfinningu og úr varð listahópurinn Félag málandi kvenna. Eitt af markmiðum hópsins er að finna styrk í samstöðunni og auka sýnileika málandi kvenna af sinni kynslóð. Hópurinn virkar einnig sem tengslanet þar sem listakonurnar geta rætt sína myndlist við jafningja, skipst á sögum og hugmyndum og hjálpast að með ýmis hagnýt atriði. Félag málandi kvenna vill að konur, sem vinna með þann hornstein myndlistar sem málverkið er, fái meira pláss í myndlistarlífinu hérlendis og aukna athygli virtra sölugallería. Félag málandi kvenna er ört stækkandi hópur en sextán listakonur verða með verk á sýningunni í Listasal Mosfellsbæjar. Þær eru Aðalheiður Daly Þórhallsdóttir, Andrea Aldan Hauksdóttir, Ásgerður Arnardóttir, Brynhildur Þórðardóttir, Dýrfinna Benita Basalan-Garðarsdóttir, Freyja Reynisdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Íris María Leifsdóttir, Kristín Morthens, Mellí-Melkorka Þorkelsdóttir, Ragnheiður Þorgrímsdóttir, Sif Stefánsdóttir, Saga Sig, Sara Björk Hauksdóttir, Sunneva Ása Weisshappel og Vera Hilmars. Kristín Morthens hvetur alla til að mæta á sýninguna: „Og styðja þannig, styrkja og taka þátt í því að breyta einsleitri flóru íslenskra málara.“ Sýningin stendur til 12. nóvember og er opin frá klukkan 12 til 18 virka daga og klukkan 12 til 16 á laugardögum. Aðgangur er ókeypis.
Mosfellsbær Myndlist Jafnréttismál Mest lesið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Lífið Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni Lífið „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Lífið Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein Sjá meira