Formúla 1

Vilja ekki að „farsinn“ í Belgíu endurtaki sig

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ökuþórarnir keyra annan tveggja hringja á bakvið öryggisbílinn í Belgíu í gær.
Ökuþórarnir keyra annan tveggja hringja á bakvið öryggisbílinn í Belgíu í gær. Dan Mullan/Getty Images

Formúla 1 hyggst gera breytingar á verklagi sínu til að koma í veg fyrir að keppni lík þeirri í Belgíu í gær verði háð á ný. Verklagið hefur sætt mikilli gagnrýni.

Mikil rigning kom í veg fyrir að keppni gæti hafist í gær. Ekkert lát virtist vera á þeirri rigningu og var að lokum tekin ákvörðun um að hefja keppnina þremur klukkustundum á eftir áætlun.

Bílarnir keyrðu þar aðeins tvo hringi á bakvið öryggisbíl áður en keppni var hætt. Þetta var gert vegna reglna Formúlu 1 sem segir til um að keyra þurfi lágmark tvo hringi til að niðurstaða kappaksturs sé gild.

Í raun átti enginn kappakstur sér stað þar sem bannað er að taka fram út öðrum bílum á meðan öryggisbíll er á brautinni og fengu áhorfendur á Spa-brautinni í Belgíu því fátt fyrir aðgangseyri sinn eftir að hafa staðið í rigningunni í fjölmarga klukkutíma er þeir biðu eftir að keppni hæfist á ný.

Heimsmeistarinn Lewis Hamilton á Mercedes lýsti atburðum gærdagsins sem „farsa“, þar sem hann sagði ökuþórana aðeins hafa verið senda út á braut til að hægt væri að fá fram úrslit í keppninni.

Fjölmargir aðrir ökuþórar hafa gagnrýnt starfshætti yfirmanna Formúlunnar í gær og sagði lið Alfa Romeo í yfirlýsingu að keppni hefði ekki átt að fara fram.

Stjórnendur hjá Formúlu 1 og FIA munu nú taka málið til skoðunar og endurmeta reglur og starfshætti við slíkar aðstæður. Þá er til skoðunar hvernig sé hægt að koma til móts við alla þá sem borguðu sig inn á brautina til þess eins að standa í rigningu á meðan ekkert gerðist á brautinni á fjórða hálfan tíma.

Spennan eykst á toppnum

Ökuþórar fengu helming stiga sem undir venjulegum kringumstæðum myndu fást fyrir hvert sæti í keppninni, keyra þarf meira en 80% hringja keppninnar til að full stig gefist, en tveir hringir dugðu til þess að niðurstaða fengist.

Max Verstappen úr liði Redbull, sem var á ráspól, fagnaði sigri í keppninni og hlaut því 12,5 stig í stað 25 sem venjulegja fást fyrir sigur. George Russell á Williams var annar og Lewis Hamilton þriðji.

Verstappen minnkaði þannig forskot Hamiltons í jafnri keppni þeirra um heimsmeistaratitil ökuþóra. Hamilton leiðir keppnina með 202,5 stig en Verstappen er annar með 199,5 stig. Þriðji er Lando Norris á McLaren með 113 stig og fjórði er liðsfélagi Hamiltons hjá Mercedes, Finninn Valtteri Bottas með 108 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×