Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Aron Guðmundsson skrifar 7. september 2026 19:50 Vettel á góðar minningar og sterka tengingu við Michael Schumacher vin sinn úr Formúlu 1 Vísir/Samsett Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel komst við er hann ræddi Michael Schumacher eftir að hafa ekið sögufrægum bíl Ferrari sem Þjóðverjinn gerði magnaða hluti með tímabilið 2002 í mótaröðinni.
Það var um nýliðna keppnishelgi Formúlu 1 á Monza sem viðstaddir fengu að fylgjast með Vettel aka þessum sögufræga bíl Ferrari nokkra hringi um Monza en um helgina var Schumacher heiðraður á margvíslegan hátt. Extra special ❤️Watch Seb complete a full lap of Monza in Michael Schumacher's legendary F2002 car #F1 #ItalianGP @ScuderiaFerrari pic.twitter.com/n1TWBhgYdM— Formula 1 (@F1) September 6, 2026 Þjóðverjinn, sem er af mörgum talinn besti ökuþór Formúlu 1 frá upphafi og vann sjö heimsmeistaratitla á sínum ferli, lenti í alvarlegu skíðaslysi árið 2013 og hefur síðan þá lítið verið gefið út um líðan hans. Schumacher hlaut alvarlega höfuðáverka. Vettel ók sjálfur fyrir Ferrari á sínum tíma og var góður vinur Schumacher. Það tók því á fyrir hann, tilfinningalega séð, að fá að aka Ferrari bílnum um helgina. Vettel með sögufrægum bílum Ferrari á MonzaVísir/Getty „Það er mjög erfitt að finna réttu orðin til þess að lýsa þessu,“ sagði Vettel í klæðnaði þar sem að á stóð: „Fyrir vin minn Michael. Það er enn keppni til þess að vinna.“ Vettel sagði hljóðið í Ferrari bílnum hafa rifjað upp margar minningar. Flestar þeirra tengdi hann við Schumacher. View this post on Instagram A post shared by Sebastian Vettel (@sebastianvettel) „Tengingin við Michael, vin minn sem við söknum öll. Ég mun lifa á þessari upplifun lengi. Hann hefur veitt mér svo mikinn innblástur. Verið mikill stuðningsmaður og ég er þakklátur fyrir vináttu okkar. Ég sakna hans. Sakna þess að hringja í hann og tala saman um lífið. Við urðum mjög nánir undir lok hans ferils og fórum að tala um þýðingarmikla hluti.“ „Ég vil trúa því og trúi því að andi hans hafi verið með mér í bílnum í dag.“
Akstursíþróttir Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Sjá meira