Innlent

Birtir nýjar leiðbeiningar: Gerir ráð fyrir að færri nem­endur þurfi að sæta sótt­kví

Eiður Þór Árnason skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir.

Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Með breytingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp.

Eru viðmið um sóttkví skilgreind eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hafi verið mikil eða ekki. Ef samskipti hafa ekki verið mikil samkvæmt skilgreiningu verður ekki gerð krafa um sóttkví heldur smitgát og getur viðkomandi þá mætt í skólann. 

Hraðpróf verða notuð þegar í hlut eiga einstaklingar sem einungis þurfa að sæta smitgát. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins þar sem leiðbeiningarnar hafa verið birtar.

Kveðið verður á um breyttar reglur um sóttkví í samræmi við leiðbeiningarnar í nýrri reglugerð sem tekur gildi næsta þriðjudag.

Í mati rakningateymisins er almennt litið til þess hvort einstaklingurinn hafi verið lengur en 15 mínútur og í minni en tveggja metra nánd við hinn smitaða. Þá er tekið mið af því hvort fólkið hafi átt í nánum samskiptum á borð við faðmlög eða kossa, átt endurtekin samskipti í minna en 15 mínútur í senn, eða verið lengi í sama rými á heimili eða vinnustað. Eftirfarandi viðmið eru svo gefin upp í nýju leiðbeiningunum:

Ef nemandi greinist með Covid-19 

Þá gildir sóttkví um: 

  • Vini og þá sem voru með nemandanum eftir skóla 
  • Nemendur sem sátu við sama borð
  • Þá sem voru með honum í vinnuhópi 

Er það mat skólastjórnar eða rakningateymis hvort hluti eða allur bekkurinn fari í sóttkví.

Smitgát gildir um þá sem:

  • Voru í samskiptum sem teljast ekki mikil
  • Voru í sama hólfi og sá smitaði
  • Voru í sömu stofu en hún var vel loftræst og engin nánd nema í mjög stuttan tíma 

Þessi hópur getur mætt í skólann en fer í hraðpróf daginn eftir að smit uppgötvast og aftur eftir fjóra daga. Ef einstaklingur greinist jákvæður í hraðprófi er viðkomandi boðaður í PCR próf. 

Einkennavarúð nær til þeirra sem:

  • Voru í litlum eða engum samskiptum við hinn smitaða 
  • Í sama hólfi en ekki á sama tíma á stöðum líkt og matsal

Þessi hópur þarf hvorki að fara í sóttkví né hraðpróf. 

Ef kennari greinist með Covid-19 gildir að öllu jöfnu það sama um hann og nemendur.

Leiðbeiningarnar má nálgast í heild sinni á vef Stjórnarráðsins.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×