Íslenski boltinn

Pepsi Max stúkan sá þroskamerki hjá Blikunum í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gísli Eyjólfsson og Árni Vilhjálmsson fagna marki hjá Blikum.
Gísli Eyjólfsson og Árni Vilhjálmsson fagna marki hjá Blikum. Hafliði Breiðfjörð

Breiðabliksliðið stendur í stórræðum þessa dagana og spiluðu í gær mikilvægan leik í Pepsi Max deildinni aðeins þremur dögum fyrir Evrópuleik í Skotlandi.

Blikarnir sýndu styrk með því að vinna 3-1 sigur á Stjörnunni í Garðabænum og ætla greinilega að passa upp á það að Valsmenn stingi ekki af í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Kjartan Atli Kjartansson og Atli Viðar Björnsson voru með Pepsi Max stúkuna á Samsung vellinum í Garðabænum í gær og ræddu meðal annars breytingu á Blikaliðinu að undanförnu.

„Blikarnir eru núna komnir með 29 stig og eru skammt á eftir Valsmönnum. Þeir eiga leik til góða og geta minnkað forskotið í eitt stig. Það eru rosalegur taktur í kringum Blikana og manni finnst Valsmenn aðeins vera að missa taktinn. Er það þín upplifun líka,“ spurði Kjartan Atli og sendi boltann á Atla Viðar.

„Valsmenn eru ólíkindatól ef ég svara því fyrst. Þeir vinna góða sigri eins og á móti KR í þar síðasta leik en svo fara þeir upp í Breiðholt og tapa þar. Ég held að ekki margir hafi átt von á því þrátt fyrir heimavallarárangur Leiknismanna,“ sagði Atli Viðar.

„Blikarnir voru frábærir í kvöld og mér fannst þeir miklu betri núna en á móti Keflavík sem var á milli síðustu Evrópuleikja. Þeir voru góðir þá og að mörgu leyti verðskulduðu ekki að tapa þeim leik,“ sagði Atli Viðar og hélt áfram.

„Það er alveg hægt að hafa þá skoðun að þeir hafi bara þroskast. Þetta var þroskaðri og heilsteyptari liðsframmistaða í dag heldur en þá,“ sagði Atli Viðar en það er hægt að sjá myndbandið af umræðunni hér fyrir neðan.

Klippa: Pepsi Max Stúkan: Þroskamerki á Blikunum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×