Áfram hlýtt í veðri næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2021 07:05 Hiti verður á bilinu átta til 24 stig í dag þar sem hlýjast verður í innsveitum austanlands. Vísir/Vilhelm Engar stórar breytingar verða á veðrinu næstu daga, en þó má búast við smá vætu um landið norðvestanvert. Áfram verður hlýtt í veðri og fer hiti víða yfir tuttugu stig þar sem sólin nær að skína um landið austanvert.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings. Landsmenn mega eiga von á heldur vaxandi sunnan- og suðvestanátt á landinu í dag. Víða verði lágskýjað eða þokubakkar í fyrstu, en birtir víða til inn til landsins þegar líður á morguninn. Áfram þungbúið víða við sjávarsíðuna. Hiti verður á bilinu átta til 24 stig þar sem hlýjast verður í innsveitum austanlands. „Suðvestan 8-13 m/s og dálítil rigning norðvestantil á landinu í kvöld. Suðvestlæg átt 5-13 m/s á morgun, hvassast með suðurströndinni. Rigning með köflum um landið norðvestanvert, skýjað og úrkomulítið suðvestantil, en bjart að mestu um allt austanvert landið. Áfram má þó búast við þokulofti við sjávarsíðuna. Búast má við áframhaldandi hlýjum suðlægum áttum yfir landinu næstu daga, en heldur kólnar eftir helgi með auknum skúraleiðingum.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðvestan 5-13, hvassast með SA-ströndinni. Skýjað og dálítil rigning vestantil, en annars bjart að mestu. Hiti 10 til 23 stig, hlýjast í innsveitum austanlands. Á föstudag: Suðlæg átt 5-10 og skýjað að mestu, en hægari breytileg átt og víða léttskýjað norðan- og austantil. Hiti 11 til 23 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Suðaustlæg átt. Skýjað og úrkomulítið um landið sunnan- og vestanvert, annars þurrt og bjart að mestu. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt. Skýjað með köflum eða bjartviðri og yfirleitt þurrt. Hiti 12 til 21 stig, hlýjast í innsveitum. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt. Skýjað með köflum og sums staðar skúrir, einkum á þriðjudag. Kólnar lítið eitt.
Veður Mest lesið Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Skýrt að Ísland sé ekki griðastaður stríðsglæpamanna Innlent Vonar að fólk taki ekki mark á auglýsingum þar sem farið er með rangindi Innlent Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Erlent Eldgos geti hafist hvenær sem er Innlent Fleiri fréttir Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Líkur á hellidembu, þrumum og eldingum suðvestantil Hlýtt og rakt loft yfir landinu Vindur á undanhaldi og hiti að tuttugu stigum Blæs hressilega af austri á landinu Gul viðvörun á Suðurlandi vegna hvassviðris Kröpp lægð stjórnar veðrinu næstu daga Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Litlar breytingar á hlaupi í Hvítá við Húsafell frá því í gær Skýjað, lítilsháttar væta og temmilega hlýtt Hiti að 21 stigi í dag Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Hægviðri og hiti að nítján stigum Norðlæg átt og víðast hvar væta Hlýjast suðaustantil Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Hitamet aldarinnar slegið Sjá meira