Körfubolti

Náðu í leikmennina sem unnu þær í síðustu tveimur lokaúrslitum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haiden Palmer fagnar hér Íslandsmeistaratitlinum sem hún vann með Snæfelli á Ásvöllum vorið 2016. Hún er hér á mynd með þeim Bryndísi Guðmundsdóttur, Berglindi Gunnarsdóttur og Gunnhildi Gunnarsdóttur en með þeim eru foreldrar Gunnarsdætra, Gunnar og Lára.
Haiden Palmer fagnar hér Íslandsmeistaratitlinum sem hún vann með Snæfelli á Ásvöllum vorið 2016. Hún er hér á mynd með þeim Bryndísi Guðmundsdóttur, Berglindi Gunnarsdóttur og Gunnhildi Gunnarsdóttur en með þeim eru foreldrar Gunnarsdætra, Gunnar og Lára. Vísir/ÓskarÓ

Haukarnir eru til alls líklegar í úrvalsdeild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð. Það munar um að vera búnar að semja við leikmenn sem hafa reynst Haukunum afar erfiðir á síðustu árum.

Helena Sverrisdóttir hefur ákveðið að snúa aftur heim í Hauka og þá hefur Hafnarfjarðarfélagið einnig gert samning við bandaríska leikmanninn Haiden Palmer.

Helena og Haiden eiga það sameiginlegt að hafa á síðustu árum verið kosnar besti leikmaður lokaúrslita þar sem Haukar þurftu að sætta sig við silfur.

Helena var valin mikilvægasti leikmaður lokaúrslitanna í ár þegar Valskonur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með 3-0 sigri á Haukum. Helena var með 15,7 stig, 11,0 fráköst og 7,0 stoðsendingar að meðaltali í úrslitaeinvíginu en hún hitti úr 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum eða 56 prósent.

Haiden Palmer var aftur á móti valin mikilvægasti leikmaður lokaúrslitanna 2016 þegar Snæfell hafði betur á móti Haukum þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í oddaleik á Ásvöllum.

Palmer var með 26,8 stig, 11,8 fráköst og 5,6 stoðsendingar að meðaltali í úrslitaeinvíginu á móti Haukum auk þess að stela 3,4 boltum og verja 1,8 skot í leik.

Í umræddu úrslitaeinvígi þá spilaði Helena með Haukaliðinu og bauð upp á 26,8 stig, 15,0 fráköst og 4,5 stoðsendingar í leik en hún missti úr einn leik í einvíginu vegna meiðsla. Helena hefur aldrei tapað þremur leikjum í úrslitaeinvígi en þrjá leiki þarf til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

Helena er uppalin í Haukum og hefur unnið þrjá Íslandsmeistaratitla með félaginu. Þann síðasta vann hún vorið 2018. Helena var komin í Val tímabilið á eftir og Haukarnir náðu aldrei að vinna Valsliðið með Helenu innanborðs.

Nú mæta Haukarnir til leiks með þær Helenu Sverrisdóttur og Haiden Palmer í fararbroddi og það verður ekkert grín að eiga við þær sem liðsfélaga á næstu leiktíð.

Haiden Palmer fagnar hércÍslandsmeistaratitlinum með liðsfélögum sínum í Snæfelli vorið 2016 en hann vann Snæfellsliðið á Ásvöllum sem er nú nýr heimavöllur Haiden.Vísir/ÓskarÓ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×