Fótbolti

Hjammi segir mark Enrico Chiesa gegn Napoli árið 1997 vera ástæðuna fyrir því að Ítalir eru komnir í úrslit

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hjálmar Örn Jóhannsson er viss um það að Ítalir geti þakkað föður Federico Chiesa fyrir að vera komnir í úrslitaleik EM eftir að hann skoraði gegn Napoli árið 1997.
Hjálmar Örn Jóhannsson er viss um það að Ítalir geti þakkað föður Federico Chiesa fyrir að vera komnir í úrslitaleik EM eftir að hann skoraði gegn Napoli árið 1997. Mynd/Skjáskot

Eins og flestir vita eru Ítalir komnir í úrslitaleik EM eftir sigur gegn Spánverjum í vítaspyrnukeppni. Niðurstaðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 1-1, en það var Federico Chiesa sem kom Ítölum yfir.

Hjálmar Örn Jóhannsson, betur þekktur sem Hjammi, var gestur í EM í dag í gærkvöldi. Hann segir að ástæða þess að Ítalir séu komnir í úrslitaleik EM sé vegna þess að faðir markaskorarans hafi skorað gegn Napoli í Janúar árið 1997.

„Spáið í einu rosalegu atviki,“ sagði Hjammi. „Enrico Chiesa, pabbi Federico Chiesa. Hann skoraði á móti Napoli 26. janúar 1997 í 2-1 tapi. Allt í góðu með það. Enginn að spá í það.“

„Hver fæðist 25. október 1997? Níu mánuðum eftir þetta mark.“

Hjammi er alveg viss um að ef Enrico Chiesa hefði ekki skorað þetta mark fyrir Parma í 2-1 tapi gegn Napoli fyrir rúmum 24 árum, þá væru Ítalir ekki komnir í úrslitaleikinn.

„Ef hann hefði ekki skorað á móti Napoli, þá hefðu Spánverjar farið áfram. Þetta er brjálað dæmi. Ég skoðaði þetta á Wikipedia áðan.“

Þetta kostulega innslag má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Hjammi um Chiesa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×