Sport

Anníe Mist sendi sautján ára vonarstjörnu CrossFit smá skilaboð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir er orðin spennt fyrir því að keppa í undanúrslitamóti heimsleikanna í CrossFit.
Anníe Mist Þórisdóttir er orðin spennt fyrir því að keppa í undanúrslitamóti heimsleikanna í CrossFit. Instagram/@anniethorisdottir

Það styttist í það að Anníe Mist Þórisdóttir fái að keppa um sæti á heimsleikunum í CrossFit í haust en það eykur spenninginn hjá henni að horfa upp á fólk vinna sér inn farseðlana sína á heimsmeistaramótið í ár.

Það fjölgar statt og stöðugt í hópi þeirra sem hafa tryggt sér sæti á heimsleikunum í CrossFit en enginn Íslendingur hefur þó enn fengið að reyna sig í undanúrslitunum. Anníe Mist Þórisdóttir er á fullu við æfingar og veit nú meira um hvaða æfingar bíða hennar í undanúrslitamótinu.

Síðustu tvær helgar hafa farið fram undanúrslitamót þar sem keppt var á staðnum en Anníe Mist mun skila æfingum sínum í gegnum netið eins og allir íslensku keppendurnir sem eiga enn möguleika.

„Það er ótrúlega gaman að sjá fólk tryggja sig inn á heimsleikana í CrossFit 2021. Það er erfitt að lýsa tilfinningunni að landa þátttökurétt á stærsta sviðinu sem sumir eru að ná þangað inn í fyrsta skiptið en aðrir að endurtaka leikinn,“ skrifaði Anníe Mist Þórisdóttir.

„Ég tryggði mig inn á mína fyrstu heimsleika árið 2009 þegar ég var bara nítján ára og hafði aldrei komið til Bandaríkjanna,“ skrifaði Anníe Mist.

„Núna tólf árum síðar eru fimm dagar í það að ég fái að keppa um sæti á þá mínum elleftu heimsleikum. Ég hef verið heilluð af frammistöðu Mal O’Brien á The Granite Games. Sautján ára stelpa mun keppa við hlið stærstu nafnanna í íþróttinni. Íþróttin er að breytast,“ skrifaði Anníe.

Hin bandaríska Mal O’Brien gerði vissulega vel um helgina þegar hún tryggði sér sæti á heimsleikunum í lok júlí en Anníe Mist lét hana og heiminn þó vita af því að þessi stórefnilega CrossFit stelpa náði ekki að gera betur en íslenska goðsögnin í einni æfingunni.

Anníe Mist birti handstöðuæfinguna hjá sér þar sem var ganga á höndum og handstöðulyftur. Hún sendi sautján ára vonarstjörnunni líka smá skilaboð.

„Í þessari grein þá náði ég samt að halda henni á eftir mér. Kannski fáum við að keppa við hvor aðra á heimsleikunum. Hennar framtíð er björt og sama má segja um framtíð CrossFit íþróttarinnar,“ skrifaði Anníe Mist Þórisdóttir en pistill hennar er hér fyrir neðan.

Eins og sjá má hér fyrir ofan þá er Freyja Mist, dóttir Anníe Mistar, komin með rétta búninginn til að fylgjast með mömmu sinni komast inn á sína fyrstu heimsleika síðan að hún varð mamma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×