Tíska og hönnun

FÍT verðlaunin 2021 afhent í streymi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
FÍT verðlaunin verða afhent klukkan 16:30 í dag.
FÍT verðlaunin verða afhent klukkan 16:30 í dag. FÍT

Í dag verður tilkynnt hverjir hljóta verðlaun í FÍT Keppninni 2021. Félag íslenskra teiknara stendur fyrir FÍT keppninni ár hvert þar sem bestu verk grafískrar hönnunar eru verðlaunuð.

Útsendingin hefst kl 16:30 og verður í rafrænu streymi sökum aðstæðna en hægt verður að fylgjast með útsendingunni í spilaranum hér fyrir neðan. 25 dómarar dæmdu í keppninni í ár og  innsendingar voru um fjögurhundruð talsins og skiptast niður í 21 flokk. Formaður FÍT er Gísli Arnarson. 

Þetta er í tuttugasta skipti sem FÍT keppnin er haldin og að því tilefni er það Haukur Már Hauksson, formaður FÍT frá 2004 til 2007 sem setur hátíðina. Hann var sá sem setti keppnina á legg árið 2001. Viðburðurinn er hluti af HönnunarMars sem fer fram í næstu viku.


Tengdar fréttir

„Verðlaunin eru gæðastimpill fyrir grafíska hönnun á Íslandi“

„Ég er bæði spenntur og vongóður fyrir komandi ári. Þó svo að við þurfum að fara hægt af stað þá náum við vonandi að ljúka því með fullum þunga þegar kemur að starfsemi FÍT,“ segir Gísli Arnarson nýr formaður FÍT, Félags íslenskra teiknara.

Þessi hlutu viðurkenningar á FÍT-verðlaununum í ár

FÍT verðlaunin 2021 voru afhent rétt í þessu í rafrænu streymi og var sýnt frá viðburðinum í beinni útsendingu hér á Vísi. Verðlaunin eru á vegum Félags Íslenskra teiknara og eru afhent í tuttugasta skipti í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×