Erlent

Minnst 82 látin eftir elds­voða á sjúkra­húsi fyrir Co­vid-19 sjúk­linga

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Líkt og sjá má urðu gríðarlegar skemmdir á Ibn Al-Khatib sjúkrahúsinu suður af Bagdad í eldsvoðanum. 
Líkt og sjá má urðu gríðarlegar skemmdir á Ibn Al-Khatib sjúkrahúsinu suður af Bagdad í eldsvoðanum.  EPA-EFE/MURTAJA LATEEF

Minnst 82 eru látin og meira en 100 særð eftir eldsvoða á sjúkrahúsi nokkru í Bagdad, höfuðborg Íraks, sem sérstaklega hafði verið útbúinn til að sinna covid-19 sjúklingum. Upptök eldsvoðans eru rakin til sprengingar súrefniskúts á sjúkrahúsinu.

Reuters greinir frá og hefur eftir Ali Bayati, hjá Mannréttindanefnd Íraks, að fjöldi látinna hafi ekki enn verið staðfestur en áætlað sé að á bilinu 30 til 45 kunni að vera látin. Þá herma fréttir að 90 hafi verið bjargað af þeim um 120 sjúklingum sem nutu aðhlynningar vegna alvarlegra veikinda af völdum covid-19.

Aðstandendur sjúklinga munu hafa reynt að aðstoða við að bjarga ástvinum sínum úr eldsvoðanum. Maður sem hafði verið að heimsækja bróður sinn á spítalann segist hafa séð fólk stökkva út um glugga til að forða sér frá eldinum.

„Eldurinn dreifðist, eins og eldsneyti… Ég tók bróðir minn út á götu við öryggishliðið. Síðan snéri ég við og fór upp þaðan. Á efstu hæðinni, sem brann ekki, ég fann stúlku sem var að kafna, um nítján ára gömul, hún var að kafna, hún var við það að deyja,“ er haft eftir bróðurnum Ahmed Zaki.

„Ég tók hana á herðarnar og hljóp niður. Fólk var að stökkva… Læknar lentu á bílunum. Allir voru að stökkva. Og ég hélt áfram að fara upp, sótti fólk og kom aftur niður,“ bætir Zaki við.

Þeir sjúklingar sem komust af munu hafa verið fluttir á önnur sjúkrahús. Mustafa al-Kadhimi, forsætisráðherra Írak, hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á eldsvoðanum.

Uppfært: í fyrri útgáfu fréttarinnar sagði að 27 hefðu látist í eldsvoðanum en samkvæmt uppfærðri frétt breska ríkisútvarpsins létust minnst 82. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×