Tökum næsta skref: Lögleiðum ölvunarakstur Karen Róbertsdóttir skrifar 8. apríl 2021 07:31 Þann 6. apríl s.l. deildi Viggó Örn Jónsson með okkur í grein sinni á vefsíðunni Vísi djúpri og yfirgripsmikilli læknisfræðilegu þekkingu frá Háskóla Facebook um hvort andlitsgrímur séu gagnlegar í heimsfaraldri; leiddi hann þar í ljós að það sé ekki lengur áhætta á að greinast með sjúkdóm með alvarleg og langvarandi einkenni hér á landi því að við erum búin að ná að fullbólusetja 17% af aldurshópnum 70-79 ára; og hvatti hann okkur til að muna að frelsi okkar til að fara í sund sé þess virði að setja veikan bróðir einhvers út á landi í smávegis áhættu. Ég vil þakka honum innilega fyrir pistilinn, því mikilvægt er að muna að það eigi *aldrei* að takmarka réttindi fólks - ekki síst réttindi okkar til að ferðast. Er þá ekki nú kominn tíminn til að taka eitt augljóst skref til viðbótar og endurheimta réttindi okkar til að keyra undir áhrifum? „En Karen,“ segir fólk, „ölvunarakstur drepur saklaust fólk“. En fólk deyr út af svo mörgum ástæðum. Fyrst var okkur sagt að það mætti keyra hvenær sem er og svo er skyndilega sagt að það væri lífsnauðsynlegt að vera edrú við stýrið. Ef maður vill ekki taka áhættu á að ég keyri á hann þá á hann bara að halda sig heimavið og láta þá sem ekki eru hræddir lifa þeirra eigin lífi í friði! „En Karen,“ er mér sagt, „síðast þegar þú keyrðir undir áhrifum keyrðirðu beint inn á Landakot og drapst 25 manns, og slasaðir mun fleiri alvarlega! Þú hefur líka keyrt beint inn í hjúkrunarheimili. Þú gerir það oft! Við getum ekki verndað aðra frá fullum bílstjórum, og því fleiri sem eru út að keyra, því oftar gerist það!“ Uss! Þessi áróður um ölvunarakstur minnir mig á umræðuna um hryðjuverk, sem leiddi til innrásarinnar í Írak. Ef þér finnst óréttlátt að senda fólk til Guantanamo Bay þá ætti þér líka að finnast það óréttlátt að banna stórar veislur í heimsfaraldri eða að hindra mig frá því að keyra blindfull og ælandi heim af barnum. Sumir styðja frelsi! Ég ímynda mér paradís þar sem COVID-19 má dreifa sér óhindrað áður en við náum hjarðónæmi í haust, heldur áfram að stökkbreytast í þúsundum líkama og þar með að gera bóluefnin okkar vita gagnslaus, til þess að það þurfi enginn að þola það óréttlæti og harðræði að þurfa að gista eina einusta nótt í fínu hótelherbergi eftir að koma heim frá sumarferð til Spánar. Auk þess ímynda ég mér í þessari paradís mig rásandi á milli akreina, vodka-pelann í hendi, klaki á rúðinni og að kveikja í tívólíbombum með Kúbanska vindlinum mínum, hendandi þeim út um gluggann (þegar ég hitti) á beygluðu Teslunni minni; allt á þetta líka að vera löglegt, því þinn réttur til öryggis, heilsu og lífs er ekki jafn mikilvægur og minn réttur á að hafa það gaman. Bann við ölvunarakstri er ekki almenningi til hagsbóta. Það er tæki til að láta fólk hlýða. Gera það augljóst að við eigum öll að lúta höfði fyrir ákvörðunum yfirvalda. Ákvörðun sem er fráleit í dag er orðin eðlileg og sjálfsögð ári seinna þegar við erum öll búin að hlýða henni nógu lengi. Leigubílstjóramafían á ríkisstjórnina, og stór hluti samfélagsins hefur látið þetta yfir sig ganga, gegn betri vitund, allt, allt of lengi! Hvað nákvæmlega, er markmiðið? Stundum setti ég frosk í sjóðandi vatn (því af hverju ekki að pynta smádýr?), en þrátt fyrir það sem mér var sagt reynir hann alltaf að hoppa upp úr, því jafnvel froskar vita betur en að bregðast ekki við þegar þeir eru í bráðri hættu. En við þurfum ekki að hlusta á visku frá froski. Hleypum inn COVID-19, og burt með bannið við ölvunarakstri. Við eigum réttindi! Höfundur er fáviti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar