Gular viðvaranir vegna yfirvofandi hríðarveðurs Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2021 06:55 Gefnar hafa út dular viðvaranir víða um land. Veðurstofan Nú er hann lagstur í vaxandi norðanátt og fer að snjóa víða á landinu í dag. Það gengur á með hríðarveðri á norðurhelming landsins eftir hádegi og verða gular veðurviðvaranir vegna hríðar í gildi til hádegis á morgun.
Víða er spáð átta til fimmtán metrum á sekúndum síðdegis en fimmtán til tuttugu vestanlands og átján til 23 norðvestantil í kvöld. Gefnar hafa verið út gular viðvaranir á Breiðafjarðarsvæðinu, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og Suðausturlandi. Taka þær gildi frá hádegi í dag og gilda sumar fram á annað kvöld. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að í nótt og á morgun dragi heldur úr vindi og ofankomu og létti til sunnan heiða, en hvessi þess í stað töluvert á Suðausturlandi. Kólnar jafnframt í veðri og líkur á talsverðu frosti á öllu landinu annað kvöld. Þá segir að ekki sé annað að sjá en vetrarríki fram yfir helgi og jafn vel lengur. Spákortið fyrir klukkan 15 eins og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðlæg átt, 13-20 m/s með snjókomu á N-veður landinu, hvassast við A-ströndina, en dregur úr vindi og ofankomu seinni partinn. Él sunnan heiða framan af degi, en léttir síðan til. Frost 0 til 10 stig minnst með SA-ströndinni. Á laugardag: Norðan 8-15 m/s og él eða snjókoma N-til, en bjartviðri syðra. Gengur í austan- og norðaustanhvassviðri með snjókomu S-lands um kvöldið. Frost 1 til 10 stig, minnst syðst. Á sunnudag (pálmasunnudagur): Stíf norðanátt með snjókomu eða slyddu, en úrkomulítið V-lands. Hlýnandi veður. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir ákveðna norðanátt með snjókomu eða éljagangi, en lengst af bjartviðri syðra. Víða vægt frost. Á miðvikudag: Líklega vestanátt með skúrum eða slydduéljum V-til, en annars bjart og heldur hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira