Loksins sótti Leeds sigur til London

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rapinha skoraði sigurmarkið í kvöld. Hér fagnar hann markinu.
Rapinha skoraði sigurmarkið í kvöld. Hér fagnar hann markinu. Andy Rain/Getty

Fyrri hálfleikurinn var ansi fjörugur. Leeds kom boltanum í netið á áttundu mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Það var svo á 29. mínútu er Patrick Bamford skoraði fysrta markið eftir fyrirgjöf Jack Harrison. Bamford heldur áfram að vera drjúgur fyrir nýliðana.

Danski landsliðsmiðvörðurinn Joachim Andersen jafnaði hins vegar metin sjö mínútum fyrir leikslok eftir hornspyrnu og staðan jöfn í hlé.

Sigurmarkið kom hálftíma fyrir leikslok. Heimamenn misstu boltann glæfralega og gestirnir nýttu sér það. Afgreiðsla Rapinha með hægri fæti góð.

Leeds var líklegri aðilinn til að bæta við mörkum, heldur en Fulham að jafna, og öflugur sigur Leeds.

Leeds er í ellefta sætinu með 39 stig en Fulham er í átjánda sætinu, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira