Innlent

Tveir greindust innan­­lands í gær og voru báðir utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Alls eru nú tæplega 13 þúsund fullbólusettir gegn Covid-19.
Alls eru nú tæplega 13 þúsund fullbólusettir gegn Covid-19. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Sextán eru nú í einangrun, en voru fimmtán í gær. 107 eru nú í sóttkví, sami fjöldi og í gær. 886 eru nú í skimunarsóttkví.

Sagt var frá því í morgun að starfsmaður Hagkaups í Garðabæ hafi greinst með smit í gærkvöldi. Sá er því annar þeirra sem greindist í gær.

Einn greindist á landamærum í gær, en þar var um að ræða smit sem greindist í seinni landamæraskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 1,6, en var 1,1 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 3,0, en var 2,7 í gær.

Greint var frá því um helgina að tveir hafi greint utan sóttkvíar, annar á föstudag og hinn á laugardag. Báðir voru teldir tengjast óbeint einstaklingi sem kom frá útlöndum og greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í seinni skimun þann 4. mars. Hefur smitrakning meðal annars náð til tónleika sem fram fóru í Hörpu á föstudaginn.

12.707 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 16.607 til viðbótar.

6.067 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 1.581 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær, umtalsvert fleiri en verið hefur síðustu vikurnar. Þá voru 353 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Starfs­maður Hag­kaups í Garða­bæ smitaður

Starfsmaður Hagkaups í Garðabæ greindist jákvæður fyrir Covid-19 í gærkvöldi. Umræddur starfsmaður vinnur á nóttunni við áfyllingar og var við störf aðfaranótt laugardags og sunnudags um liðna helgi.

Þrír hafa greinst með veiruna innan­lands síðan á föstu­dag

Þrír hafa greinst með veiruna innan­lands síðan á föstu­dag. Einn á föstudag, tveir á laugardag, en enginn í gær, sunnudag. Sá sem greindist á föstudag var utan sóttkvíar. Annar þeirra sem greindist á laugardag var utan sóttkvíar, en hinn ekki.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×