Lífið

„Þorði ekki að spyrja hvort að barnið myndi lifa“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigmundur Grétar Hermannsson og Eva Rún Guðmundsdóttir voru á meðal þeirra foreldra sem komu fram í öðrum þætti af Líf dafnar.
Sigmundur Grétar Hermannsson og Eva Rún Guðmundsdóttir voru á meðal þeirra foreldra sem komu fram í öðrum þætti af Líf dafnar. Líf dafnar

Sigmundur Grétar Hermannsson og Eva Rún Guðmundsdóttir eiga saman þrjú börn. Dreng fæddan 2013 sem fæddist eftir 30 vikna meðgöngu, stúlku fædda 2015 eftir 32 vikna meðgöngu og svo eignuðust þau litla stúlku árið 2020 eftir fulla meðgöngu.

„Þetta er eiginlega öll flóran. Fyrst er bjöllukeisari, svo er bráðakeisari og svo fyrirfram ákveðinn keisari,“ segir Eva Rún og hlær.

Þau þekkja bæði að eignast barn á settum tíma og að eignast fyrirbura, sem getur oft verið erfitt, ógnvekjandi og flókið. Þau Eva Rún og Simmi voru á meðal þeirra foreldra sem sögðu sína sögu í einlægum viðtölum í öðrum þætti af Líf dafnar. Hægt er að horfa á brot úr þættinum í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Líf dafnar - Simmi og Eva Rún

Þorði ekki að spyrja

„Í fyrsta keisaranum, sem var bjöllukeisari, vorum við rennandi blaut á bak við eyrun. Við vissum ekki neitt. Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í. Ég þorði ekki að spyrja hvort að barnið myndi lifa,“ viðurkennir Eva Rún.

Simmi segir að í kjölfarið hafi tekið við tveggja og hálfs mánaðar vökudeildardvöl með tilheyrandi vaktaskiptum fyrir foreldra. Samhliða því hafi hann reynt að vinna, þar sem fyrirvarinn á fæðingunni var stuttur enda ennþá margar vikur í settan dag.

„Það tók mann svolítinn tíma að átta sig á því hvað var að gerast.“

Þau segja bæði að þau hafi verið rólegri í seinni fæðingunni, enda vissu þau hvernig þetta ferli færi fram og við hverju væri að búast.

Simmi sagði frá sinni upplifun af fyrirburafæðingum og því þegar litla stúlkan hans greindist með hjartagalla nokkurra vikna gömul.Líf dafnar

Brotnaði niður við greininguna

„Eftir seinni fæðinguna var stelpan á vökudeildinni og við kunnum miklu meira á kerfið, þekkjum andlitin, þekktum ljósmæðurnar,“ segir Simmi um fæðingu seinni fyrirburans þeirra. Nokkru síðar kom bakslag eftir að barnið greindist með hjartagalla og þurftu þau að fara til Svíþjóðar.

„Ég eiginlega bara brotnaði niður eftir það,“ segir Simmi og Eva Rún tekur undir.

„Áfallið kemur ekkert strax.“

Á flugvelli með pínulítinn fyrirbura

Þegar þau fóru til Svíþjóðar vissu þau ekki hvenær þau gætu komið heim aftur eða hvað þetta tæki langan tíma. Eva Rún segir að það hafi verið erfitt enda hafi hún verið „pínuponsu“ lítil.

„Það er bara ekkert eðlilegt að fara með eins og hálfs kílóa barn í sjúkraflugi á Saga Class, í annað land. Að ganga í gegnum öryggishlið og haga sér á flugvelli, það meikar engan sens.“

Eva Rún segir að það hafi verið skrítið að ferðast á milli landa með barn sem var ekki tvö kíló að þyngd.Líf dafnar

Simmi segir að það sitji mest í honum að hafa þurft að baða litlu stelpuna sína tvisvar upp úr joði og skrúbba hana með svampi.

„Hún mátti ekki borða svo hún öskraði í sólarhring fyrir aðgerð.“

Eva stóð þar vansvefta og með full brjóst af mjólk en mátti ekki gefa grátandi barninu sínu. Eftir baðið þurftu þau að leggja stúlkuna frá sér og máttu ekki snerta hana fyrr en eftir aðgerð. Þau segja að það hafi verið erfitt að láta hana frá sér en aðgerðin heppnaðist vel.

„Það er bara gott að þetta gekk allt, það var bara fyrir öllu.“

Líf dafnar eru sýndir á miðvikudögum á Stöð 2 og eru einnig aðgengilegir á Stöð 2+ þar sem hægt er að horfa á þá með íslenskum texta.

Í fyrsta þættinum af Líf Dafnar er fjallað um mikilvægi tengslamyndunar, svefn, grátur barna og áhrif erfiðrar fæðingarreynslu á frekari barneignir. Í þætti tvö er fjallað um lífið á vökudeild, áhrif þess að eignast fleiri börn og valið barnleysi. Í þætti þrjú er fjallað um áhrif kynferðisofbeldis á barneignir, líkamsímynd, áhrif samfélagsmiðla og brjóstagjöf. 

Þáttur fjögur fjallar um börn með sérþarfir, andlega heilsu, áhrif barneigna á sambandið og kynlíf foreldra. Fimmti þáttur er um foreldra sem ættleiddu barn, skilnað, samsettar fjölskyldur, ömmur og afa og að bæta við barni en í lokaþættinum tökum við raunina fyrir og uppeldi. Þættirnir eru framleiddir af Glassriver í samstarfi við Eyland & Kamban fyrir Stöð 2 og voru ár í vinnslu. Þáttastjórnandi er Andrea Eyland.


Tengdar fréttir

Var með samviskubit í hálft ár yfir tengslarofinu

„Þetta var æðislegt en örugglega svona fyrstu fimm, sex mánuðina gekk mér illa að ná þessari tengingu,“ segir Gunnar Helgason um tengslamyndunina eftir að hann varð faðir í fyrsta skipti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×