Smyglaði hárgreiðslumanni upp á hótel fyrir Miss World Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. janúar 2021 11:30 Linda Pé deildi sínum leyndarmálum varðandi förðun og snyrtivörur með þeim Heiði Ósk og Ingunni Sig í HI beauty. HI beauty „Það sést alltaf svo vel húðinni okkar lífsstíllinn okkar,“ segir Linda Pétursdóttir, athafnakona og fyrrum Miss World. Sjálf segist hún hugsa vel um líkamann að innan sem utan. Linda segir frá sínum uppáhalds förðunar- og snyrtivörum ásamt því að ræða um það sem hún gerir fyrir sína húð í þættinum Snyrtiborðið með HI beauty. „Partur af rútínunni minni er að ég drekk mikið vatn. Ég drekk tvo eða tvo og hálfan líter á dag og byrja alla daga á að drekka tvö stór vatnsglös.“ Þáttinn í heild sinni má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Snyrtiborðið með HI beauty - Linda Pé Húðin lykilatriði Linda fer einnig í saunu og kalda sturtu á morgnana og segist nota það sem ákveðið detox eða hreinsun fyrir húðina. „Ég elska góðar olíur og serum, fyrir mig skiptir það mestu máli og á alveg nokkrar tegundir en er ekki að nota þær allar í einu.“ Linda hugsar vel um húðina á öllum líkamanum og eru tvö mikilvæg atriði í þeirri húðumhirðu. Hún þurrburstar sig alla daga og ber svo kókosolíu á sig á eftir. Gaf hún einnig nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig best væri að þurrbursta líkamann. Nánari upplýsingar um uppáhalds vörur Lindu má finna í viðtalinu í spilaranum hér fyrir ofan. Linda Pé notar mikið af kremuðum augnskuggum sem auðvelt er að setja á augnlokið.HI beauty Farðaði sig sjálf Linda segir meðal annars í viðtalinu að keppendur í Miss World árið 1988 hafi getað látið farða sig og greiða sér á staðnum en sjálf afþakkaði hún þá þjónustu og fór sínar eigin leiðir. „Ég hafði séð á æfingu daginn áður einhverjar stelpur sem voru málaðar og var ekki að fíla það þannig að ég ákvað að láta ekki mála mig.“ Hún farðaði sig því sjálf fyrir keppnina, sem hún endaði svo á að vinna og var krýnd fegursta kona heims. Hárgreiðsluna gerði hún þó ekki sjálf og þurfti að fara krókaleiðir til að fá greiðslu frá einhverjum sem hún þekkti og treysti. „Hárgreiðslumeistarinn minn sem heitir Dúddi hann ferðaðist með mér, líka eftir að ég varð Miss World. Hann kom út á keppnina og þar var mikið „security“ en sá sem var yfir öryggisgæslunni hélt dáítið upp á mig svo við fengum að smygla Dúdda upp hæðina hjá mér til að gera hárið á mér fyrir keppnina og stelpuna sem var með mér í herbergi, Ungfrú Ísrael.“ Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Hárið þeirra er stíliserað með John Frieda hárvörum. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi. Instagram: @the_hibeauty HI beauty Förðun Tíska og hönnun Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Grillað nachos fyrir partíið og pallinn í góða veðrinu Lífið samstarf Fleiri fréttir Langaði að passa inn en nýtur þess nú að skera sig úr Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Skemmtilegasti partur dagsins að klæða sig upp „Fataskápurinn minn gerir ekki ráð fyrir sól“ Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Er Rihanna best klædda mamma allra tíma? Íslenskur förðunarfræðingur í nýrri herferð Kardashian Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ Sjá meira
Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Hárið þeirra er stíliserað með John Frieda hárvörum. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi. Instagram: @the_hibeauty
HI beauty Förðun Tíska og hönnun Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Grillað nachos fyrir partíið og pallinn í góða veðrinu Lífið samstarf Fleiri fréttir Langaði að passa inn en nýtur þess nú að skera sig úr Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Skemmtilegasti partur dagsins að klæða sig upp „Fataskápurinn minn gerir ekki ráð fyrir sól“ Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Er Rihanna best klædda mamma allra tíma? Íslenskur förðunarfræðingur í nýrri herferð Kardashian Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Drottningar landsins kjörnuðu sig með Ernu Bergmann Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ Sjá meira