Lætur ekkert stoppa sig Magnús Hlynur Hreiðarsso skrifar 23. júlí 2013 21:05
Þrátt fyrir að Snædís Rán Hjartardóttir, átján ára sé blind, heynarhlaus og hreyfihömluð þá lætur hún það ekki stoppa sig við að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu 24. ágúst með aðstoðarkonu sinni. Þær nota nú flesta daga til að æfa sig fyrir hlaupið. Snædís Rán er nemandi á félagsfræðibraut við Menntaskólnn í Hamrahlíð. Hún er heyrnarhlaus, blind og hreyfihömluð. Sandra Helgadóttir, ein af aðstoðarkonum hennar ætlar að hlaupa 10 kílómetra með henni í Reykjavíkurmaraþoninu laugardaginn 24. ágúst. Þær ætla að hlaupa fyrir Fjólu, Félag fólks með samþætta heyrnar- og sjónskerðingu. „Við vorum bara að ræða saman við eldhúsborðið þegar ég stakk upp á þessu í einhverjum fíflagangi. áður en við vissum af vorum við búnar að skrá Snædísi, og ég verð bara að hlaupa með. Ég er í ágætisformi en þarf að bæta mig talsvert til að geta hlaupið með hjólastólinn alla þessa leið,“ segir Sanda. Það leggst vel í Snædísi að hlaupa maraþonið. „Mér finnst það mjög spennandi. Þetta er ansi klikkuð hugmynd, en ég ætla einmitt að hlaupa vegna þess.“ Hjólastólinn sem þær stöllur nota núna er óhentugur fyrir hlaup, þungur og erfiður en þær munu fá nýjan stól fyrir 24. Ágúst. Snædís Rán og Sandra ætla að hlaupa fyrir Fjólu, Félag fólks með samþætta heyrnar- og sjónskerðingu. Þær ætla að reyna að safna eins miklum peningum og þær mögulega geta. „Við verðum að safna miklu. Ég vil safna eins miklu og hægt er. Það vantar alltaf peninga fyrir Fjólu,“ segir Snædís að lokum.Hér er hægt að styrkja Snædísi og Söndru í hlaupinu.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Ráðuneytið segir kostnaðinn átta til þrettán milljarða Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Sjá meira