Fjöldi hótelherbergja hefur tvöfaldast frá aldamótum Hödd Vilhjámsdóttir skrifar 23. júlí 2013 19:07
Sífellt fleiri hótel og gistiheimili hafa verið opnuð á höfuðborgarsvæðinu en gistirýmum hefur fjölgað um tæplega 600 herbergi á síðastliðnum þremur árum. Hótelstjóri segir nóg að gera þrátt fyrir aukið framboð. Árin 2000 til 2008 var stöðug aukning á framboði, en á þeim árum fjölgaði herbergjum á hótelum og gistheimilum á höfuðborgarsvæðinu um 1475 og voru árið 2008 rúmlega 3400 talsins. Næsta ár á eftir fækkaði svo herbergjum um fjörutíu. Síðan þá hefur framboðið aukist aftur og í lok síðasta árs var fjöldinn kominn upp í rúmlega 3930. Það er aukning um tæplega 600 herbergi á þremur árum. Við Höfðatorg á að rísa hótel með yfir 340 herbergjum, en það er ekki bara nóg að byggja bara ný og glæsileg hótel því einhverjir verða gestirnir að vera til þess að reksturinn standi undir sér. Það er því jákvætt að erlendir ferðamenn eru spenntir fyrir landi en samkvæmt tölum á vef Ferðamálastofu voru rúmlega 311.000 slíkir sem komu inn til landsins frá janúar til júní á þessu ári. Sólborg Steinþórsdóttir, hótelstjóri Icelandair Hotel Reykjavík Natura, segir að það sé nóg að gera á hótelinu. „Það er bara fínt að gera, gott sumar og nóg að gera. Að vísu er breyting frá því sem hefur verið að það er meira að gera yfir vetrartímann, þannig að það er ekki eins mikið bil á milli sumars og veturs." Sólborg segir að gestir hótelsins séu vel stemmdir, enginn hafi kvartað yfir veðrinu í sumar enda eru þeir fyrst og fremst að koma til að njóta íslenskrar náttúru og til þess þarf ekki endilega sól.Hér má sjá aukninguna frá aldamótum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira