Lífið

Vann baráttuna við krabbamein og dóttirin skráði hana óvænt í þáttinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einstaklega falleg prufa.
Einstaklega falleg prufa.

Mæðgurnar Honey og Sammy mættu í áheyrnaprufu í skemmtiþættinum Britain´s Got Talent á dögunum og fluttu saman fallegt lag.

Sú eldri greindist með krabbamein fyrir nokkrum árum og hefur lífið þeirra beggja verið mikill rússíbani síðustu misseri.

Sammy er 43 ára og dóttir hennar Honey er aðeins 14 ára.

Sú yngri skráði þær mæðgur í þáttinn án þess að sú eldri vissi yfirleitt af því. Mamman ákvað eftir töluverða umhugsun að slá til og taka þátt.

Til að byrja með flutti þær lag sem gekk ekki nægilega vel og stöðvaði Simon Cowell flutninginn, bað þær um að fara afsíðis, undirbúa sig betur og koma til baka með annað lag.

Það heppnaðist heldur betur vel.

Amanda Holden, einn af dómurunum, var það hrifin af flutningi mæðgnanna að hún ýtti á gullhnappinn sem skilar þeim beint í úrslitin. Holden réði vart við tilfinningar sínar og táraðist ítrekað á meðan flutningnum stóð.

Hér að neðan má sjá áheyrnaprufuna í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×