Þétt bókað sumar hjá Júníusi Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. júlí 2015 12:00 Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, er á tónleikaferð um Danmörku og Þýskaland þessa dagana. Mynd/Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir
Vestmannaeyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson stimplaði sig rækilega inn á íslenska tónlistarlandakortið þegar hann gaf út smáskífuna „Color Decay“ vorið 2014. Unnar Gísla þekkja margir landsmenn undir listamannsnafninu Júníus Meyvant. Nú hefur Júníus Meyvant lokið við vinnslu sinnar fyrstu þröngskífu og kallast hún einfaldlega EP. Þröngskífuna vann hann víða með upptökumönnunum Magnúsi Øder Kristinssyni og Finni Hákonarsyni. Auk „Color Decay“ inniheldur EP þrjú önnur lög, þ.m.t. nýjustu smáskífuna „Hailslide“. Hann er nú farinn í tónleikaferð þar sem hann kemur fram tvennum tónleikum í Danmörku og þrennum í Þýskalandi. Þá eru einnig bókaðir nokkrir tónleikar hér á landi og verður hann til að mynda á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Árið 2014 var gott ár fyrir Júníus Meyvant. „Color Decay“ naut mikilla vinsælda meðal hlustenda Rásar 2 og sömuleiðis var lagið valið lag ársins af dagskrárstjóra KEXP, Kevin Cole. Júníus kom, sá og sigraði á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár og fór frá athöfninni með tvenn verðlaun. Annars vegar sem Bjartasta vonin og svo verðlaun fyrir besta lag ársins. Record Records gefur út og er þröngskífan fáanleg á geisladisk, vínyl og á stafrænum netveitum.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Fleiri fréttir Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sjá meira