Enski boltinn

Meiðsli Kranjcar áfall fyrir Portsmouth

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Niko Kranjcar í leik með Portsmouth.
Niko Kranjcar í leik með Portsmouth. Nordic Photos / Getty Images
Niko Kranjcar var í gær borinn af velli í leik Portsmouth og Bolton og gæti verið frá í einhvern tíma vegna meiðslanna.

Portsmouth vann leikinn, 1-0, og vann þar með þrjú mikilvæg stig í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Portsmouth er þó ekki hólpið og mætir Manchester United á miðvikudaginn. Kranjcar verður ekki með þá og gæti verið frá í lengri tíma.

„Það lítur út fyrir að hann hafi snúið upp á ökklann. Það er slæmt að missa hann því hann er mikilvægur leikmaður - sérstaklega þar sem leikmannahópurinn okkar er ekki stór."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×