Framsókn fengi engan mann kjörinn 11. desember 2004 00:01
Framsóknarflokkurinn fengi engan mann kjörinn ef flokkurinn biði fram einn og sér í borgarstjórnarkosningum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðismenn fengju sex menn kjörna eins og þeir hafa nú. Oddviti Framsóknar í borginni segir könnunina endurspegla fylgisleysi Sjálfstæðismanna öðru fremur. Framsóknarflokkurinn fengi aðeins 4,4 prósent atkvæða og engan mann kjörinn ef flokkarnir sem standa að Reykjavíkurlistanum biðu fram hver í sínu lagi. Frjálslyndir kæmu hinsvegar manni að og mælast því með meira fylgi en Framsóknarflokkurinnn í borginni. Munurinn er þó innan skekkjumarka. Vinstri grænir myndu fá 18% atkvæða og þrjá borgarfulltrúa og Samfylkingin 32% og fimm borgarfulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn, sem lét framkvæma könnunina á tímabilinu 10. til 29. nóvember, þegar styrinn í kringum borgarstjóraskiptin stóð sem hæst, fengi hinsvegar sex borgarfulltrúa líkt og hann hefur í dag. Alfreð Þorsteinsson segir að Framsóknarflokkurinn komi jafnan illa út úr skoðanakönnunum en vel út úr kosningum. Það hafi sýnt sig fyrir síðustu Alþingiskosningar á fylgi í Reykjavík. Hann segist sannfærður um að ef Framsóknarflokkurinn biði fram stakur myndi hann fá tvo menn inn og á milli 10-15% fylgi. Það sé hins vegar athyglisvert að Sjálfstæðisflokknum takist ekki komast mikið yfir 40%. Alfreð segir að Framsóknarflokkurinn eigi vel smurða kosningavél sem fari í gang ef flokkurinn ákveði að bjóða fram sérstaklega. Hann segist ekki geta svarað því af hverju Framsóknarflokkurinn komi illa út á milli kosninga. Alfreð segist ekki eiga von á því að þetta ýti undir þá skoðun framsóknarmanna að flokkurinn bjóði fram sér. Það verði að skoða þegar líður fram á næsta ár hvort R-listinn heldur áfram starfi sínu og það sé alveg óháð þessari könnun.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira