Lítið var um áfallahjálp 20. desember 2004 00:01
Þrjátíu ár eru í dag frá því að snjóflóðin féllu á Neskaupstað og tólf manns fórust. Einn þeirra sem missti ættingja í flóðunum segir áfallahjálp nauðsynlega, en lítið var um slíkt á þessum tíma. Snjóflóðin sem féllu á Neskaupstað voru 2 og féllu einkum á Fiskimjölsverskmiðjuna, steypustöð, bifreiðaverkstæði og bíla, en einnig á eitt íbúðarhús. Tólf manns týndu lífi, en allt að 20 klukkustundum eftir flóðið fundust menn á lífi. Kristján Tryggvi Högnason var tólf ára þegar þetta gerðist, en faðir hans var staddur í Fiskimjölsverksmiðjunni. Hann var heima hjá sér og varð ekki var við flóðin, en frétti fyrst af því þegar vinkonur systur hans komu og létu vita af slysinu. Lík föður hans fannst ekki fyrr en rúmum 20 tímum eftir að flóðið féll. Kristján segir biðina eftirminnilegasta af því sem þarna átti sér stað. Hann segist lengi hafa haldið í vonina um að faðir hans væri á lífi, enda hafi fólk verið að finnast á lífi lengi á eftir. Að sögn Kristjáns kom sóknarpresturinn heim til fjölskyldunnar og fólk sýndi hlýju, en að öðru leyti hafi ekki verið unnið með þá sem áttu um sárt að binda. Hann hafi orðið þess var 20 árum eftir slysið þegar hann var beðinn um að halda fyrirlestur á vegum samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, hvað hann hafði unnið lítið úr þessari reynslu, en einbeitt sér að því í framhaldinu. Á þessum tíma var ekki áfallahjálp eins og nú þekkist og segir Kristján slíka hjálp nauðsynlega. Það sé mjög mikilvægt að fagfólk komi að ferlinu og muni hve langan tíma tekur að vinna úr hlutum sem þessum og því þurfi bakstuðning lengi á eftir. 20 árum eftir snjóflóðin missti Kristján föðurbróður sinn í snjóflóði í Tungudal við Ísafjörð og hann segir þann atburð hafa kippt sér aftur um 20 ár og eins snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri og þar hafi biðin farið verst með sig. Hann segist kippast við enn þann dag í dag þegar hann heyrir fregnir af snjóflóðum. Hann segir að sárin grói aldrei alveg og opnist á ný við streitu og erfitt sé að klára að vinna úr þessu að fullu.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira