Ljósin verða á um áramótin 20. desember 2004 00:01
Götuljós verða ekki slökkt í Reykjavík um áramótin. Af slíku ástandi gæti skapast hætta og tími til undirbúnings þótti of skammur. Upphafleg hugmynd var sú að slökkt yrði á öllum götuljósum í Reykjavík og nágrenni frá klukkan hálftólf fyrir miðnætti til klukkan hálfeitt svo að njóta mætti enn betur ljósadýrðarinnar þegar gamalt ár yrði skotið upp. Eftir samráðsfund lögreglunnar í Reykjavík, slökkviliðs borgarinnar, Gatnamálastofu og Orkuveitunnar var hins vegar horfið frá hugmyndinni þar sem of lítill tími þótti til undirbúnings. Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Höfuðborgarstofu, segir að lögreglan hafi haft áhyggjur af því að öryggi borgaranna yrði í enn meiri hættu en ella á tímapunkti sem væri hættulegur fyrir, enda víða fjöldi fólks saman kominn með áfengi um hönd að skjóta upp flugeldum. Ef taka ætti upp á því að slökkva öll götuljós borgarinnar í klukkustund um áramótin yrði að undirbúa slíkt gríðarlega vel og hugmyndin hafi einfaldlega komið of seint til þess að svo mætti verða. Rætt hafi verið um að stytta tímann sem ljósin yrðu slökkt, en lögreglu hafi einfaldlega þótt tími til undirbúnings of knappur. Eftir að niðurstöður samráðsfundarins voru sendar í ráðhús Reykjavíkur sendu borgaryfirvöld svo frá sér formlega neitun um möguleikan á því að slökkva götuljósin í borginni á miðnætti á gamlárskvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira