Viðskipti innlent

Heilsugæslan fær „margra milljóna pakka“ frá 66° norður og fjárfestingafélagi í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66° norður, ræddi kórónuveiruna og rekstur keðjunnar í Bítinu í morgun.
Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66° norður, ræddi kórónuveiruna og rekstur keðjunnar í Bítinu í morgun. skjáskot

Starfsmenn heilsugæslunnar eiga von á 400 kílóa sendingu í dag. Í henni verður að finna margvíslegan hlífðarfatnað; eins og galla, gleraugu og plastgrímur. Útivistarkeðjan 66° norður, sem þegar hefur útvegað heilusgæslunni 4000 andlitsgrímur, hefur veg og vanda af sendingunni en forstjóri keðjunnar áætlar að verðmæti hennar hlaupi á „mörgum milljónum.“ Heilsugæslan mun þó ekki þurfa að að bera þann kostnað því fjárfestingafélagið Stoðir hefur boðist til að borga brúsann.

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Helga Rúnars Óskarssonar, fyrrnefnds forstjóra, í Bítinu í morgun. Helgi segir að rekstur 66° norður hafi vitaskuld ekki farið varhluta af yfirstandandi kórónuveirufaraldri og hafi því verið brugðið á það ráð að loka þremur verslunum keðjunnar; á Bankastræti, Keflavíkurflugvelli og annarri verslun 66° norður á Akureyri.

Þrátt fyrir þessar lokanir hefur keðjan þó komist hjá því að grípa til fjöldauppsagna og segir Helgi að þar hafi hlutabótaleið stjórnvalda skipt sköpum. Úrræðið hafi nýst 66° norður „gríðarlega vel.“ Þar að auki hafi orðið nokkur aukning á netsölu, nú þegar fólk veigrar sér við að fara í verslanir, og hafi keðjan geta nýtt starfskrafta fólks við netverslunina.

Prufugríma sem 66° norður hefur þróað.bítið

Þá segir Helgi að 66° norður hafi jafnframt verið að prófa sig áfram á síðustu dögum við framleiðslu á andlitsgrímum. Keðjan hafi mikla reynslu af því að sauma hvers kyns hlífðarfatnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk en grímurnar hafi þau ekki saumað áður. Hann sýndi sýnishorn af grímum fyrirtækisins í Bítinu í morgun en sló þann varnagla að þær séu ekki úr þeim efnum sem talin eru æskileg. 66° norður leiti nú að þessum efnum svo hægt sé að hefja framleiðslu á grímunum.

Margra milljóna pakki á leiðinni

Þetta er þó ekki eina framlag 66° norður til baráttunnar gegn kórónuveirunni, að sögn Helga. Þannig hafi 66° norður sett sig í samband við birgja sína í Kína og útvegað heilsugæslunni á Íslandi 4000 staðlaðar andlitsgrímur sem þegar sé búið að afhenda.

Helgi segir að grímunum hafi verið tekið fagnandi og að heilsugæslan hafi spurt hvort 66° norður gæti útvegað meiri hlífðarfatnað; eins og galla, gleraugu og plastgrímur.

„Þannig að við fórum á stúfana og komumst að því að við getum útvegað þetta. Það er því að koma 400 kílóa sending til landsins í dag,“ segir Helgi. Hann áætlar að þetta sé „margra milljóna pakki“ eins og hann orðar það en að hvorki 66° norður né heilsugæslan þurfi að bera þann kostnað. Fjárfestingafélagið Stoðir hafi þegar boðist til að greiða fyrir sendinguna.

Spjallið við Helga Rúnar Óskarsson, forstjóra 66° norður, má sjá í heild sinni hér að neðan.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×