Viðskipti innlent

„Furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp merki um að það ætli að styðja við Icelandair“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA furðar sig á að ríkið gefi ekki skýr svör varðandi aðkomu að Icelandair.
Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA furðar sig á að ríkið gefi ekki skýr svör varðandi aðkomu að Icelandair. vísir/arnar

Þrír bankar vinna með Icelandair að væntanlegu hlutafjárútboði. Fagjárfestar segja að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar fyrr en allar upplýsingar liggja fyrir. Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu.

Framkvæmdastjóri Stefnis sem fer í heild með annan stærsta hlut í Icelandair segir að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar í félaginu fyrr en það komi fram með áætlanir um framhaldið. Hann segist aldrei hafa upplifað svona tíma. Greinendur telja að Icelandair sé mikilvægasta fyrirtæki landsins fyrir atvinnulíf og velferð.Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu.

Íslandsbanki, Kviku banki og Landsbankinn aðstoða Icelandair við áætlanir vegna hlutafjárútboðs félagsins. Bogi Nils Bogason forstjóri félagsins hefur sagt verið sé að vinna á útboði en ekki sé komin tímasetning á það hvenær það verður. Tíminn vinnit ekki með félaginu þar sem stærstu hlutafjáreigendur hafa sagt að þeir taki engar ákvarðanir um frekari fjárfestingar fyrr en upplýsingar og áætlanir liggir fyrir.

Ljóst er að ekki verður ráðist í útboð á næstu vikum því áður en það fer fram þarf að boða til hluthafafundar með nokkurra vikna fyrirvara og eftir það er hægt að fara í hlutafjárútboð.

Mikilvægasta fyrirtæki landsins

Samkvæmt heimildum fréttastofu er verið að skoða hvort hlutafjárútboðið verði aðeins ætlað fagfjárfestum eða hvort almenningur geti einnig keypt hlutabréf í félaginu. Fjárfestar þurfa trúverðugar áætlanir um tekjur og kostnað og launakostnaður skiptir miklu máli í því samhengi. Þá þarf félagið að útskýra hvernig fer með samninga vegna Max flugvélanna sem voru kyrrsettar. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að greinendur telji að félagið þurfi 15 - 30 milljarða króna. Þá sé mikilvægt að kjarasamningar við lykilstarfsfólk verði að lágmarki til fimm ára.

Greinendur sem fréttastofa hafði samband við í morgun meta það svo nú að Icelandair sé mikilvægast fyrirtæki landsins. Forsendur fyrir að hér sé öflugt atvinnulíf og velferð byggi að stórum hluta á að samgöngur til og frá landinu séu traustar. 

Aldrei upplifað aðra eins óvissutíma

Sjóðstýringarfélagið Stefnir fer með samanlagt með annan stærstan hlut í Icelandair eða ríflega 12% í þremur sjóðum. Jökull Úlfsson framkvæmdastjóri sjóðsins segir að félagið hafi fjárfest í Icelandair eftir endurskipulagninu félagsins á sínum tíma og farið inn á genginu tveimur en gengið var í morgun um 2,4. Jökull segist aldrei hafa upplífað aðra eins óvissutíma. Fylgst sé náið með stöðu Icelandair og engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar í félaginu fyrr en allar upplýsingar liggi fyrir. Ákvarðanir verði byggðar á að tryggja hagsmuni sjóðsfélaga.

Opnir fyrir því að taka upp kjarasamninga 

Icelandair sagði í gær upp 96% flugmanna sinna með tölvupósti og ábyrgðarbréf er á leiðinni til þeirra að sögn Jóns Þórs Þorvaldssonar formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann er undrandi á að að ríkið komi ekki beint með fjármagn að félaginu í ljósi þess hversu mikilvægt það sé fyrir þjóðarhag.

„Með þessa hagsmuni undir sem tengjast Icelandair þá er alveg furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp eitthvað merki um að það ætli að styðja við Icelandair,“ segir Jón Þór. 

Hann segir að eðlilegt að félagið sé að kanna að skoða launalið í tengslum við hlutafjárútboð.

„Við erum alveg opnir fyrir því að skoða nýja kjarasamninga en launin sem flugmenn eru á eru fyllilega samkeppnishæf við allt sem er í kringum okkur“ segir hann.


Tengdar fréttir

Stefna á almennt hlutafjárútboð

Icelandair Group, móðurfélag Icelandair sem tilkynnti í gær um stærstu hópuppsögn Íslandssögunnar, hyggst efna til hlutafjárútboðs á næstunni sem yrði opið almenningi.

Flugfreyjur með yfir þrjátíu ára starfsreynslu misstu vinnuna

Rúmlega 95 prósent flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair missa vinnuna um mánaðamótin þegar uppsagnir rúmlega tvö þúsund starfsmanna flugfélagsins taka gildi. Formaður Flugfreyjufélagsins segir uppsagnirnar fleiri en hún hefði óttast.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×