Mannskæð gassprenging í Belgíu 30. júlí 2004 00:01
Að minnsta kosti 14 létu lífið og 200 slösuðust í sprengingu í gasverksmiðju í Belgíu í morgun. Gasverksmiðjan er á Ghislenghien iðnaðarsvæðinu sem er um 30 kílómetra suð-austur af Brussel. Viðgerðarmenn voru að störfum við gasleiðslur sem liggja á um sex metra dýpi við verksmiðjuna um sjö leytið í morgun. Að sögn héraðsstjórans, er talið að viðgerðarhópurinn hafi gert gat á eina leiðsluna og við það hafi orðið sprenging. Sprengingin var svo öflug að hún fannst í um tíu kílómetra fjarlægð. Stór hluti verksmiðjunnar jafnaðist við jörðu og eldur kom upp í tveimur nærliggjandi verksmiðjum. Bílar sem voru í sæmilegri fjarlægð frá einni byggingunni eru allir brunnir og lengi vel teygðu eldtungur sig yfir hundrað metra upp í loftið. Meðal slasaðra eru lögreglu- og slökkvliðsmenn sem börðust við eldana. Belgíski heilbrigðisráðherrann, Rudy Demotte, hefur aflýst fríi í Búlgaríu og er á leið heim í herflugvél. Herinn hefur verið kallaður út til að aðstoða björgunarlið og búið er að loka nærliggjandi hraðbrautum. Íbúum í nágrenninu hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra og loka öllum gluggum því þykkur mökkur lá yfir svæðinu eftir sprenginguna. Ekki er þó talið að gas í hættulegu magni hafi náð að leka út í loftið. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira