Guðjón neitaði að gefa Keflavík mark 6. júlí 2007 05:45 Bjarna Guðjónssyni er forðað frá leikmönnum Keflavíkur af félögum sínum eftir markið umdeilda í fyrrakvöld. fréttablaðið/eiríkur
Knattspyrnuheimurinn logaði í gær vegna síðara marks Bjarna Guðjónssonar gegn Keflavík í fyrrakvöld. Þegar Keflvíkingar bjuggust við því að Bjarni myndi láta þá fá boltann eftir að leikmaður ÍA fékk aðhlynningu vegna meiðsla hafnaði boltinn í marki Keflavíkur eftir langskot Bjarna. Sjálfur segir Bjarni að hann hafi aldrei ætlað að skora úr skotinu. Hann vildi losa pressuna og senda boltann aftur fyrir endamörk. „Ég er fyrsti maðurinn til að viðurkenna að ég ætlaði aldrei að skora. Ef það hefði verið ætlun mín væri líðan mín í dag ekki eins og hún er," sagði Bjarni. „Viðbrögðin mín eftir að ég skora hljóta að sýna og sanna að ég ætlaði ekki að skora." Keflvíkingar hópuðust að Bjarna eftir atvikið og þurfti að stía mönnum í sundur. Spurður hvort ekki hefði verið hægt að leiðrétta þetta mark með því að leyfa Keflvíkingum að skora strax í næstu sókn sagði Bjarni að það hefði sennilega verið hægt að gera einmitt það. „Hins vegar voru viðbrögð Keflvíkinga ekki í lagi. Þeir réðust að mér, ekki bara einn eða tveir heldur allir. Það er ekki þeim að þakka að ég var ekki sleginn niður, heldur vegna þess að ég var dreginn í burtu." Bjarni sagðist hafa rætt þetta mál við þjálfara ÍA, Guðjón Þórðarson. Sjálfur sagði Guðjón í samtali við Fréttablaðið að viðbrögð Keflvíkinga hefði ekki gefið tilefni til þess að gefa þeim mark á móti. „Það varð allt vitlaust," sagði Guðjón. „Ef þeir hefðu bakkað frá á þessum tímapunkti og við hefðum getað rætt málin, hefðum við getað leyft þeim að labba í gegn og skora. Sú staða komst hins vegar aldrei á koppinn vegna framkomu Keflvíkinga." Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga, er ekki að kaupa afsakanir feðganna. „Ég stend við það sem ég sagði í sjónvarpsviðtalinu eftir leik," sagði hann. Þá sagði hann að Bjarni hafi gert þetta með ásetningi og væri honum til skammar. „Mér finnst einnig að það skuli ekkert hafa verið gert í framhaldinu mjög óheiðarlegt og óíþróttamannslegt." Hann segir að ásetningur Bjarna hafi verið greinilegur. „Hann var búinn að reyna þetta áður en hitti bara ekki. Það er líka óeðlilegt að sparka boltanum frá miðju og koma honum þannig aftur fyrir endamörk. Það er bara óeðlilegt." Bjarni sagði aðspurður að hann myndu engu breyta fengi hann tækifæri til þess. „Ekki miðað við hvernig viðbrögð Keflvíkinga voru eftir leikinn. Það viðhorf sem þeir sýndu sérstaklega eftir leikinn finnst mér til háborinnar skammar." Skilaboð hans til Keflvíkinga voru skýr. „Markið sem ég skoraði átti aldrei að verða mark. Ég biðst afsökunar á því. Sennilega hefði verið hægt að leysa málið öðruvísi. En úr því sem komið var er markið minnsta áhyggjuefnið af því sem gerðist í lok leiksins og eftir hann."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira