Sýknaður þrátt fyrir samræði gegn hennar vilja 6. júlí 2007 05:15 Maðurinn komst undan á hlaupum ásamt félaga sínum eftir átök við starfsmenn hótelsins. Fréttablaðið/hari
Ungur pólskur karlmaður hefur í Héraðsdómi Reykjavíkur verið sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í kjallara Hótels Sögu í mars síðastliðnum. Fjölskipaður héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að athæfi mannsins gæti ekki talist ofbeldi í skilningi laga, og að manninum hafi ekki hlotið að vera það ljóst að samræðið við konuna væri gegn vilja hennar. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa þröngvað konunni til samræðis með ofbeldi með því að ýta henni inn á salernisbás og hafa þar munnmök við hana, sleikja kynfæri hennar, hafa við hana samræði og reyna að setja getnaðarlim sinn í endaþarm hennar. Í dómnum segir að framburður stúlkunnar sé einkar trúverðugur og að ljóst sé að samræði hafi átt sér stað, gegn hennar vilja, og nokkurn vegin eins og lýst er í ákæru. Hins vegar segir í dómnum að ekki verði séð að ákærði hafi haft ástæðu til að halda að „hún væri honum andhverf“ þar sem þau urðu samferða niður að snyrtingunni og frásögn mannsins um að vel hafi farið á með þeim sé ekki ótrúverðug. Hún hafi auk þess ekki streist á móti á meðan á samræðinu stóð, og ekki reynt að kalla á hjálp þegar einhver kom ínn á salernið. Sjálf segist hún hafa verið í of miklu áfalli til þess. Þá segir að ef byggt sé á frásögn stúlkunnar af því sem gerðist líti dómurinn svo á „að það að ákærði ýtti [stúlkunni] inn í klefann, læsti klefanum innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf, geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi í skilningi [laga], eins og það hugtak hefur verið skýrt í refsirétti og langri dómaframkvæmd.“ Það eitt myndi nægja til að sýkna manninn, segir í dómnum.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira