Byggt í Úlfarsárdal fyrir 3,7 milljarða 4. desember 2012 07:00 Um síðustu áramót voru 352 íbúar með lögheimili í Úlfarsárdal. Fréttablaðið/Vilhelm
Algjör stefnubreyting verður í uppbyggingu Úlfarsárdals. Í stað 18.000 manna byggðar er gert ráð fyrir 2.500 til 3.000 manna byggð. Um áramótin voru 352 með lögheimili í Úlfarsárdal. Reykjavíkurborg mun setja 3.650 milljónir í uppbyggingu í Úlfarsárdal og Grafarholti á næstu fimm árum. Önnur umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fer fram í dag. Þar verða kynnt uppbyggingaráform í Úlfarsárdal, en á næstu fimm árum á að reisa nýjan samþættan leik- og grunnskóla, íþróttahús í fullri keppnisstærð og sundlaug. Á næsta ári verða 250 milljónir settar til verkefnisins og efnt til hönnunarsamkeppni. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að Úlfarsárdalur sé það hverfi sem verst hafi farið út úr hruninu. Uppbyggingin, sem unnið hafi verið að í samvinnu við íbúa, auki vonandi bjartsýni á framtíð hverfisins. „Þetta verður rólegra og friðsælla hverfi en lagt var upp með, en við veitum þó fullburða þjónustu með því að setja niður íþróttasvæði og sundlaug, auk samstæðs leik- og grunnskóla. Við vitum að margir íbúar hafa haft áhyggjur af því. Ég held að allir, þar með talið íbúarnir, hafi horfst í augu við það að það þurfti að trappa gömlu áformin niður.“ Framkvæmdirnar verða að hluta til fjármagnaðar með sölu lóða. Framlag úr borgarsjóði ræðst af eftirspurn af lóðunum. „Við leynum því ekkert að þetta eru síðustu suðurhlíðarnar á höfuðborgarsvæðinu. Nú þegar við hugsum Úlfarsárdal og Grafarholt sem heild er komin svipuð hverfiseining og við þekkjum úr Árbæjarhverfi. Stóra breytingin er í raun að í nýju aðalskipulagi munum við ekki gera ráð fyrir þessari gríðarlega miklu uppbyggingu í Úlfarsárdal eins og áður var.“ Íþróttafélagið Fram og Reykjavíkurborg gerðu með sér samning um flutning félagsins í hverfið, en þá var gert ráð fyrir 18.000 íbúum. Dagur segir borgina vilja standa við þann samning, en vegna breyttra forsenda verði fundað með Fram um málið.- kóp
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira