Segir málþóf ástæðu fyrir seinkun á niðurfellingu skulda Haraldur Guðmundsson og Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 16. maí 2014 00:01 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra kennir stjórnarandstöðunni um að ekki var hægt að sækja um skuldaniðurfellingu í gær. Fréttablaðið/Daníel
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sakaði stjórnarandstöðuna um málþóf í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Tilefnið var að Svandís Svavarsdóttir, VG, spurði ráðherrann hvenær yrði hægt að sækja um niðurfellingu skulda á vef Ríkisskattstjóra en búið var að tilkynna að það yrði hægt frá og með gærdeginum. Sigmundur Davíð sagði að hægt yrði að sækja um skuldaleiðréttingu um leið og þinghlé verður gert í vor. Hann sagði ástæðuna fyrir því að ekki var hægt að gera það í gær þá að stjórnarandstaðan hafi lagst í dæmalaust málþóf. Hann sagði að Ríkisskattstjóri væri tilbúinn og gæti ýtt á takkann um leið og þingið hefði afgreitt frumvarpið. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir undirbúning embættisins vegna frumvarpsins hafa miðað vel. „Það ætti ekki að taka lengur en einn til tvo daga að opna svokallaða höfuðstólslækkun eftir að þau lög fara í gegnum þingið. En lögin um ráðstöfun séreignarsparnaðar krefjast meiri undirbúnings og því þurfum við tvær helgar til að ljúka þeirri vinnu,“ segir Skúli. Eftir að umræðum um lagasetningu á verkfall flugmanna var lokið í gær, hófust umræður um skuldaleiðréttingarfrumvarp ríkisstjórnarinnar. Kristján Möller, fyrsti varaforseti Alþingis, sagði í gær að enn væri stefnt að þinghléi í kvöld eða nótt.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sjá meira